Skip to main content

Svampur Sveinsson Efnisyfirlit Vinsældir KvikmyndinSaganDeilur Persónur Leiðsagnarval

Bandarískir teiknaðir sjónvarpsþættirTeiknaðir grínþættir


enskateiknimyndirteiknarannsjávarlíffræðinginnStephen HillenburgNickelodeonBandaríkjunumStöð 2ÍslandiMTVEvrópuSvampur SveinssonPétur krossfiskurSigmar smokkfiskurKlemmi krabbiHarpa íkornineðansjávarofansjávarviðnámbátumbílumfreyðibaðvinsælda2004frumsýndlokaþátturinnföstudaginn8. aprílkórónuævintýrumDavid Hasselhofffiskarnirkafaraköfunarbúnaðikýklópur1993Nútímalíf RikkaBandaríkjunumframleiðendumteiknaristarfsgreinar19971996hönnunarstjóranumDerek DrymonhandritshöfundnumMerriwether Williams1999SkriðdýrinteiknistílkímniorðaleikiklósettkímninniáhorfstölurteikningumInvader ZimNickelodeonhryðjuverkin á Bandaríkin, 11. september 2001börnumáfallið2002hugmyndum20042004Ren og Stimpyárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001hryðjuverkhörpuskelsamkynhneygðWe Are Family Foundation[1]MTV












Svampur Sveinsson




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu






Jump to navigation
Jump to search


Svampur Sveinsson (enska: SpongeBob SquarePants) eru teiknimyndir eftir teiknarann og sjávarlíffræðinginn Stephen Hillenburg sem eru sendar út á Nickelodeon í Bandaríkjunum sem framleiðir þær líka, Stöð 2 á Íslandi og MTV í Evrópu. Aðalpersónur þáttanna eru Svampur Sveinsson, Pétur krossfiskur, Sigmar smokkfiskur, Klemmi krabbi og Harpa íkorni. Flestir þættirnir eiga sér stað í bænum Bikinibotnum og nágrenni.


Þættirnir gerast að mestu leyti neðansjávar en aðstæður þar eru gerðar mjög svipaðar og ofansjávar. Umhverfið virðist hafa sama viðnám og ofansjávar í þáttunum og íbúarnir keyra um á bátum sem eru mjög svipaðir bílum og þeir fara jafnvel í freyðibað.




Efnisyfirlit





  • 1 Vinsældir


  • 2 Kvikmyndin


  • 3 Sagan


  • 4 Deilur


  • 5 Persónur

    • 5.1 Aðal


    • 5.2 Auka


    • 5.3 Minna þekktar





Vinsældir


Svampur Sveinsson nýtur mikilla vinsælda, bæði meðal barna og fullorðinna en þættirnir eru fyrstu ódýru (low budget) teiknimyndirnar frá Nickelodeon sem ná viðlíka vinsældum.


Kvikmyndin


Veturinn 2004 var frumsýnd kvikmynd um sama efni í Bandaríkjunum og átti hún upphaflega að vera lokaþátturinn en framleiðslu sjónvarpsþáttanna var þó haldið áfram. Myndin var frumsýnd á Íslandi föstudaginn 8. apríl.


Í myndinni fá Svampur og Pétur það verkefni að bjarga kórónu Neptúnusar konungs og lenda í ýmiskonar ævintýrum á leiðinni og hitta m.a. alþjóðlegu stórstjörnuna David Hasselhoff. Þar lenda þeir einnig uppi á raunverulegu (óteiknuðu) yfirborði, sem er áhugavert þar sem raunverulegu fiskarnir verða teiknaðir um leið og þeir lifna við.
Einnig hitta þeir fyrir raunverulegan kafara í gamaldags köfunarbúnaði sem er álitinn kýklópur af fiskunum.


Sagan


Sögu Svamps Sveinssonar er hægt að rekja allt til ársins 1993 þegar þættirnir Nútímalíf Rikka voru fyrst sendir út í Bandaríkjunum en einn af framleiðendum þáttanna var Stephen Hillenburg teiknari og sjávarlíffræðingur en hann naut þess að vinna við báðar starfsgreinar. Eftir að sýningum þeirra þátta lauk árið 1997 byrjaði hann að vinna að Svampi (en þó eru til skissur frá árinu 1996). Hann myndaði lítinn hóp með hönnunarstjóranum Derek Drymon og handritshöfundnum (story editor) Merriwether Williams.


Fyrsti þátturinn var sendur út árið 1999. Á þessum tíma voru þættirnir Skriðdýrin (Rugrats) á hátindi frægðar sinnar og margar aðrar ódýrar teiknimyndir búnar að renna sitt skeið á enda. Upphaflega var vænst til þess að Svampur Sveinsson, með óvandaðan teiknistíl, einfalda kímni og orðaleiki ólíkt klósettkímninni sem einkenndi Skriðdýrin yrði ein af þeim þáttaröðum en nokkrum dögum eftir fyrstu sýningar ruku áhorfstölur upp og það tók um eitt ár fyrir Svamp Sveinsson að toppa áhorfstölur Skriðdýranna en það er eflaust að þakka skemmtilegri rödd Svamps og stíl þáttanna.


Önnur þáttaröðin hóf göngu sína með betri teikningum og enn betri þáttum og þá varð heiminum ljóst að Svampur Sveinsson hefði rutt brautina fyrir þroskaðri kímnihú í teiknimyndum og hafði mikil áhrif á þætti eins og Invader Zim sem voru einnig sýndir á Nickelodeon.
Eftir hryðjuverkin á Bandaríkin, 11. september 2001 fengu þættirnir enn meira áhorf en nokkurn tíman áður og Svampur Sveinsson varð vinsælli en nokkru sinni fyrr en sumir telja að þættirnir hafi hjálpað börnum og jafnvel fullorðnum að jafna sig eftir áfallið.


Árið 2002 var einnig gott í upphafi og vinsældir þáttanna miklar og margir sígildir þættir urðu til í þriðju þáttaröðinni sem byggðist á sömu hugmyndum og önnur þáttaröðin en Hillenburg var farinn að hugsa um að hætta að vinna að þáttunum en þegar það spurðist út að það ætti að gera kvikmynd sem nokkurskonar lokaþátt árið 2004 mótmæltu aðdáendur þáttanna hástöfum og þáttaröðin var lengd til ársins 2003.


Áhorfstölur voru enn háar í Bandaríkjunum en í lok sumarsins 2004 tilkynnti forstjóri Nickelodeon það að þættirnir ættu eftir að halda áfram án Hillenburg. Derek Drymon hefur tekið við framleiðslunni en það er ein af þeim litlu breytingum sem orðið hafa á framleiðsluliðinu.


Veturinn 2004 var svo kvikmyndin um Svamp Sveinsson frumsýnd í Bandaríkjunum.


Deilur


Svampur Sveinsson hefur vakið upp ýmsar deilur, rétt eins og margir aðrir þættir sem Nickelodeon hefur sýnt, t.d. Ren og Stimpy en vinsældir þáttanna hafa gert deilurnar mun háværari. Þessar deilur hafa aðallega átt sér stað í Bandaríkjunum.


Rétt eftir árásirnar á Bandaríkin 11. september 2001 voru þættirnir bendlaðir við hryðjuverk. Ákveðið var að breyta einum þætti þar sem átti að sprengja veitingastaðinn Klemmabita.


Í einum þætti þriðju seríu ættleiða Svampur og Pétur hörpuskel og voru þeir þar með sakaðir um samkynhneygð en þær ásakanir reyndust ósannar þar sem framleiðendur þáttanna segja þá kynlausa.
Öfgafull, kristin samtök í Bandaríkjunum hafa einnig nýlega sakað „We Are Family Foundation“ um að dreifa jákvæðum áróðri um samkynhneygð með myndbandi sem þeira hafa dreift í þarlendum skólum þar sem m.a. Pétur og Svampur koma fram. Talsmaður samtakanna segir hinsvegar að þeir sem hafa haldið því uppi ættu að heimsækja lækni og fá stærri lyfjaskammt [1] en myndbandinu var ætlað að kenna börnum kærleika og virðingu fyrir náunganum.


Svampur Sveinsson hefur orðinn vinsæll meðal eldri áhorfenda og hefur verið sýndur á MTV og álíka stöðvum. Margir halda því jafnvel fram að vegna þess að þættirnir eru svona vinsælir meðal fullorðinna (og þá sérstaklega karlmanna), hljóti þeir að vera slæmir.



Persónur



Aðal


  • Svampur Sveinsson (Tom Kenny, Sigurður Sigurjónsson)
    • Ferkantaður og glaðlyndur svampur sem á heima í djúpinu í ananas og vinnur á hamborgarastaðnum Klemmabita með leiðinlegum nágranna sínum sem heitir Sigmar.

  • Sigmar (Rodger Bumpass, Davíð Þór Jónsson)

    • Andstyggilegur smokkfiskur sem á heima í páskaeyjarastyttu á milli Svamps Sveinssonar og Péturs krossfisks. Þó öllum öðrum persónunum þyki ósköp vænt um hann er hann bæði svartsýnn og andfélagslyndur.

  • Pétur (Bill Fagerbakke, Jakob Þór Einarsson)
    • Ákaflega treggáfaður krossfiskur og besti vinur Svamps. Hann á heima undir steini.

  • Harpa (Carolyn Lawrence)
    • Annar vinur Svamps, hún er jarðíkorni frá Texas og klæðist gömlum geimbúningi svo hún geti lifað af neðansjávar.

  • Klemmi (Clancy Brown)

    • Peningagráðugur nískupúki, humar og eigandi Klemmabita. Yfirmaður Svamps og Sigmars.

Auka



  • Paddi

    • Marfló sem rekur veitingastaðinn Hrákadallinn og aðal samkeppnisaðili Klemmabita. Þrátt fyrir smæðina hefur hann gríðarlega rödd og er algert illmenni.


  • Garðar snigill (Tom Kenny)
    • Gælusnigillinn hans Svamps og segir yfirleitt bara „mjá“ en er mun gáfaðri en margir halda við fyrstu sýn.


Minna þekktar


  • Hafmeyjumaðurinn og Hrúðurkarlinn
    • Hafmeyjumaðurinn er útbrunnin ofurhetja og Hrúðurkarlinn er sérlegur aðstoðarmaður hans.

  • Neptúnus Konungur
    • Neptúnus kemur meira fram í myndinni en hann var í þættinum Neptune's Spatula.




Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Svampur_Sveinsson&oldid=1592847“










Leiðsagnarval



























(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.040","walltime":"0.045","ppvisitednodes":"value":124,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":0,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":0,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":2,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":0,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 0.000 1 -total"],"cachereport":"origin":"mw1305","timestamp":"20190309205331","ttl":2592000,"transientcontent":false););"@context":"https://schema.org","@type":"Article","name":"Svampur Sveinsson","url":"https://is.wikipedia.org/wiki/Svampur_Sveinsson","sameAs":"http://www.wikidata.org/entity/Q83279","mainEntity":"http://www.wikidata.org/entity/Q83279","author":"@type":"Organization","name":"Contributors to Wikimedia projects","publisher":"@type":"Organization","name":"Wikimedia Foundation, Inc.","logo":"@type":"ImageObject","url":"https://www.wikimedia.org/static/images/wmf-hor-googpub.png","datePublished":"2005-03-01T02:10:37Z","dateModified":"2018-05-04T21:34:30Z"(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgBackendResponseTime":119,"wgHostname":"mw1247"););

Popular posts from this blog

Færeyskur hestur Heimild | Tengill | Tilvísanir | LeiðsagnarvalRossið - síða um færeyska hrossið á færeyskuGott ár hjá færeyska hestinum

He _____ here since 1970 . Answer needed [closed]What does “since he was so high” mean?Meaning of “catch birds for”?How do I ensure “since” takes the meaning I want?“Who cares here” meaningWhat does “right round toward” mean?the time tense (had now been detected)What does the phrase “ring around the roses” mean here?Correct usage of “visited upon”Meaning of “foiled rail sabotage bid”It was the third time I had gone to Rome or It is the third time I had been to Rome

Slayer Innehåll Historia | Stil, komposition och lyrik | Bandets betydelse och framgångar | Sidoprojekt och samarbeten | Kontroverser | Medlemmar | Utmärkelser och nomineringar | Turnéer och festivaler | Diskografi | Referenser | Externa länkar | Navigeringsmenywww.slayer.net”Metal Massacre vol. 1””Metal Massacre vol. 3””Metal Massacre Volume III””Show No Mercy””Haunting the Chapel””Live Undead””Hell Awaits””Reign in Blood””Reign in Blood””Gold & Platinum – Reign in Blood””Golden Gods Awards Winners”originalet”Kerrang! Hall Of Fame””Slayer Looks Back On 37-Year Career In New Video Series: Part Two””South of Heaven””Gold & Platinum – South of Heaven””Seasons in the Abyss””Gold & Platinum - Seasons in the Abyss””Divine Intervention””Divine Intervention - Release group by Slayer””Gold & Platinum - Divine Intervention””Live Intrusion””Undisputed Attitude””Abolish Government/Superficial Love””Release “Slatanic Slaughter: A Tribute to Slayer” by Various Artists””Diabolus in Musica””Soundtrack to the Apocalypse””God Hates Us All””Systematic - Relationships””War at the Warfield””Gold & Platinum - War at the Warfield””Soundtrack to the Apocalypse””Gold & Platinum - Still Reigning””Metallica, Slayer, Iron Mauden Among Winners At Metal Hammer Awards””Eternal Pyre””Eternal Pyre - Slayer release group””Eternal Pyre””Metal Storm Awards 2006””Kerrang! Hall Of Fame””Slayer Wins 'Best Metal' Grammy Award””Slayer Guitarist Jeff Hanneman Dies””Bullet-For My Valentine booed at Metal Hammer Golden Gods Awards””Unholy Aliance””The End Of Slayer?””Slayer: We Could Thrash Out Two More Albums If We're Fast Enough...””'The Unholy Alliance: Chapter III' UK Dates Added”originalet”Megadeth And Slayer To Co-Headline 'Canadian Carnage' Trek”originalet”World Painted Blood””Release “World Painted Blood” by Slayer””Metallica Heading To Cinemas””Slayer, Megadeth To Join Forces For 'European Carnage' Tour - Dec. 18, 2010”originalet”Slayer's Hanneman Contracts Acute Infection; Band To Bring In Guest Guitarist””Cannibal Corpse's Pat O'Brien Will Step In As Slayer's Guest Guitarist”originalet”Slayer’s Jeff Hanneman Dead at 49””Dave Lombardo Says He Made Only $67,000 In 2011 While Touring With Slayer””Slayer: We Do Not Agree With Dave Lombardo's Substance Or Timeline Of Events””Slayer Welcomes Drummer Paul Bostaph Back To The Fold””Slayer Hope to Unveil Never-Before-Heard Jeff Hanneman Material on Next Album””Slayer Debut New Song 'Implode' During Surprise Golden Gods Appearance””Release group Repentless by Slayer””Repentless - Slayer - Credits””Slayer””Metal Storm Awards 2015””Slayer - to release comic book "Repentless #1"””Slayer To Release 'Repentless' 6.66" Vinyl Box Set””BREAKING NEWS: Slayer Announce Farewell Tour””Slayer Recruit Lamb of God, Anthrax, Behemoth + Testament for Final Tour””Slayer lägger ner efter 37 år””Slayer Announces Second North American Leg Of 'Final' Tour””Final World Tour””Slayer Announces Final European Tour With Lamb of God, Anthrax And Obituary””Slayer To Tour Europe With Lamb of God, Anthrax And Obituary””Slayer To Play 'Last French Show Ever' At Next Year's Hellfst””Slayer's Final World Tour Will Extend Into 2019””Death Angel's Rob Cavestany On Slayer's 'Farewell' Tour: 'Some Of Us Could See This Coming'””Testament Has No Plans To Retire Anytime Soon, Says Chuck Billy””Anthrax's Scott Ian On Slayer's 'Farewell' Tour Plans: 'I Was Surprised And I Wasn't Surprised'””Slayer””Slayer's Morbid Schlock””Review/Rock; For Slayer, the Mania Is the Message””Slayer - Biography””Slayer - Reign In Blood”originalet”Dave Lombardo””An exclusive oral history of Slayer”originalet”Exclusive! Interview With Slayer Guitarist Jeff Hanneman”originalet”Thinking Out Loud: Slayer's Kerry King on hair metal, Satan and being polite””Slayer Lyrics””Slayer - Biography””Most influential artists for extreme metal music””Slayer - Reign in Blood””Slayer guitarist Jeff Hanneman dies aged 49””Slatanic Slaughter: A Tribute to Slayer””Gateway to Hell: A Tribute to Slayer””Covered In Blood””Slayer: The Origins of Thrash in San Francisco, CA.””Why They Rule - #6 Slayer”originalet”Guitar World's 100 Greatest Heavy Metal Guitarists Of All Time”originalet”The fans have spoken: Slayer comes out on top in readers' polls”originalet”Tribute to Jeff Hanneman (1964-2013)””Lamb Of God Frontman: We Sound Like A Slayer Rip-Off””BEHEMOTH Frontman Pays Tribute To SLAYER's JEFF HANNEMAN””Slayer, Hatebreed Doing Double Duty On This Year's Ozzfest””System of a Down””Lacuna Coil’s Andrea Ferro Talks Influences, Skateboarding, Band Origins + More””Slayer - Reign in Blood””Into The Lungs of Hell””Slayer rules - en utställning om fans””Slayer and Their Fans Slashed Through a No-Holds-Barred Night at Gas Monkey””Home””Slayer””Gold & Platinum - The Big 4 Live from Sofia, Bulgaria””Exclusive! Interview With Slayer Guitarist Kerry King””2008-02-23: Wiltern, Los Angeles, CA, USA””Slayer's Kerry King To Perform With Megadeth Tonight! - Oct. 21, 2010”originalet”Dave Lombardo - Biography”Slayer Case DismissedArkiveradUltimate Classic Rock: Slayer guitarist Jeff Hanneman dead at 49.”Slayer: "We could never do any thing like Some Kind Of Monster..."””Cannibal Corpse'S Pat O'Brien Will Step In As Slayer'S Guest Guitarist | The Official Slayer Site”originalet”Slayer Wins 'Best Metal' Grammy Award””Slayer Guitarist Jeff Hanneman Dies””Kerrang! Awards 2006 Blog: Kerrang! Hall Of Fame””Kerrang! Awards 2013: Kerrang! Legend”originalet”Metallica, Slayer, Iron Maien Among Winners At Metal Hammer Awards””Metal Hammer Golden Gods Awards””Bullet For My Valentine Booed At Metal Hammer Golden Gods Awards””Metal Storm Awards 2006””Metal Storm Awards 2015””Slayer's Concert History””Slayer - Relationships””Slayer - Releases”Slayers officiella webbplatsSlayer på MusicBrainzOfficiell webbplatsSlayerSlayerr1373445760000 0001 1540 47353068615-5086262726cb13906545x(data)6033143kn20030215029