Skip to main content

Evrópa Efnisyfirlit Orðsifjar | Saga | Staðhættir og landamörk | Lönd | Menning | Heimildir | Tengt efni | Tenglar | LeiðsagnarvalHvaða lönd teljast til Evrópu?bb

EvrópaHeimsálfur


heimsálfumjarðarinnarmenningarsvæðilandamæriAsíuEvrópuskaganumEvrasíuLandamæriNorður-ÍshafAtlantshafÍslandiMiðjarðarhafDardanellasundBospórussundÚralfjöllKákasusfjöllKaspíahafflatarmáliferkílómetrarAsíuAfríkuEvrópusambandiðaðildarríkiRússlandgrískri goðafræðiEvrópafönikískSeifurKrítarMínosHómersGrikklandssemitískuakkadískaMið-Austurlöndumkínverskavestrænnar menningarlýðræðiseinstaklingshyggjuForn-Grikklandskristnijafnréttisstefnuréttarríkiðrómverska stórveldisinsþjóðflutningunummiðaldirnarklaustursamfélögÍrlandi8. aldarHið heilaga rómverska ríkiMið-EvrópuAustrómverska ríkiðKonstantínópelIstanbúl1453OttómanveldiðEndurreisninnýju konungsdæmin15. öldPortúgalSpánnlandvinninganaFrakklandHollandBretlandnýlendustefnunniAfríkuSuður-Norður-AmeríkuAsíueinræðiFrönsku byltingunninýja heiminnNapóleon BónapartehertakaIðnbyltinginfyrri heimsstyrjöldinaseinni heimsstyrjaldarinnarkalda stríðinukommúnistaríkiAustur-EvrópuTyrklandGrikklandáætlunarbúskapkapítalistaríkiSuður-Vestur-EvrópumarkaðshagkerfiBerlínarmúrinnSovétríkinEvrópubandalagiðEvrópusambandiðNATOEvrasíaÚralfjöllRússlandiAsíuKaspíahafKákasus-fjöllSvartahafiðBospórussundMarmarahafiðDardanellasundEyjahafMiðjarðarhafN-AtlantshafiðN-ÍshafiðNoregSvissÍslandSuður-EvrópaÖlpunumPýreneafjöllumKarpatafjöllumslétturevrópska sléttanBretlandseyjumSkandinavíuskagannKólaskagaDónáRínRónVolgaDnéprDonÍberíuskaginnÍtalíameginland EvrópuflekamótaN-AmeríkuflekansEvrasíuflekansErmarsundiðForngrikkjaRómverjakristnisíðfornöldmiðaldirEndurreisninsiðaskiptinupplýsinginAfrica (orthographic projection).svgAfríkaAsia (orthographic projection).svgAsíaEurope orthographic Caucasus Urals boundary.svgEvrópaOceania, broad (orthographic projection).svgEyjaálfaLocation North America.svgNorður-AmeríkaSouth America (orthographic projection).svgSuður-AmeríkaAntarctica (orthographic projection).svgSuðurskautslandiðAfro-Eurasia (orthographic projection).svgAfró-EvrasíaAmericas (orthographic projection).svgAmeríkaAustralia-New Guinea (orthographic projection).svgÁstralíaEurasia (orthographic projection).svgEvrasía












Evrópa




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu






Jump to navigation
Jump to search


Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Evrópa“


Myndin sýnir staðsetningu Evrópu


Evrópa eða Norðurálfa er ein af sjö heimsálfum jarðarinnar. Frekar mætti kannski kalla álfuna menningarsvæði heldur en ákveðna staðháttafræðilega heild, sem leiðir til ágreinings um landamæri hennar. Evrópa er, sem heimsálfa, á miklum skaga vestur úr Asíu (Evrópuskaganum) og myndar með henni Evrasíu.


Landamæri Evrópu eru náttúruleg að mestu leyti. Þau liggja um Norður-Íshaf í norðri, Atlantshaf í vestri (að Íslandi meðtöldu), um Miðjarðarhaf, Dardanellasund og Bospórussund í suðri og eru svo yfirleitt talin liggja um Úralfjöll í austri. Flestir telja Kákasusfjöll einnig afmarka Evrópu í suðri og Kaspíahaf í suðaustri.


Evrópa er næstminnsta heimsálfan að flatarmáli, en hún er um 10.180.000 ferkílómetrar eða 2,0 % af yfirborði jarðarinnar. Hvað varðar íbúafjölda er Evrópa þriðja fjölmennasta heimsálfan, á eftir Asíu og Afríku. Í henni búa fleiri en 740.000.000 manna (2011). Það eru 12 % af íbúafjölda heimsins.


Evrópusambandið (ESB) er stærsta stjórnmálalega og efnahagslega eining álfunnar en því tilheyra 27 aðildarríki. Næststærsta einingin er Rússland.




Efnisyfirlit





  • 1 Orðsifjar


  • 2 Saga


  • 3 Staðhættir og landamörk

    • 3.1 Staðhættir



  • 4 Lönd


  • 5 Menning


  • 6 Heimildir


  • 7 Tengt efni


  • 8 Tenglar




Orðsifjar |





Evrópa og nautið eftir Gustave Moreau, 1869


Í grískri goðafræði var Evrópa afburða fögur fönikísk prinsessa. Seifur brá sér í nautslíki og nam hana á brott til Krítar, þar sem hún fæddi Mínos en hann var að hluta maður og að hluta naut. Í huga Hómers var Evrópa (Gríska: Ευρωπη) hin goðsagnalega drottning Krítar en ekki landfræðilegt hugtak. Seinna stóð Evrópa fyrir meginland Grikklands og um árið 500 f.Kr. var merking orðsins orðin víðari og átti nú einnig við um landsvæðið fyrir norðan.


Gríska hugtakið Evrópa er komið úr grísku orðunum eurys (breiður) og ops (andlit), þar sem „breiður“ er líking við móður jörð í hinum endurreistu forn-indóevrópsku trúarbrögðum. Sumir telja hins vegar að merking hugtaksins hafi afmyndast á þann hátt að það hafi komið úr semitísku orði eins og hinu akkadíska erebu sem þýðir „sólarlag“. Frá Mið-Austurlöndum séð sest sólin yfir Evrópu, í vestri. Eins telja margir orðið Asía hafa öðlast merkingu sína úr semitísku orði eins og hinu akkadíska asu, sem þýðir sólarupprás, en Asía er einmitt í austri frá Mið-Austurlöndum.


Meirihluti tungumála heimsins nota orð skyld „Europa“ um heimsálfuna — aðalundantekningin er hið kínverska 欧洲 (Ōuzhōu) en uppruni þess er óljós.



Saga |


Aðalgrein: Saga Evrópu

Uppruni vestrænnar menningar, lýðræðis og einstaklingshyggju er oft rakinn til Forn-Grikklands. Aðrir áhrifavaldar, til dæmis kristni, hafa eflaust einnig haft áhrif á vestræn gildi eins og jafnréttisstefnu og réttarríkið.


Eftir fall rómverska stórveldisins gekk langt breytingaskeið yfir Evrópu með þjóðflutningunum. Það skeið er þekkt sem miðaldirnar eða „hinar myrku miðaldir“ eins og þær voru gjarnan kallaðar á endurreisnartímanum enda litu menn á þær sem hnignunarskeið. Afskekkt klaustursamfélög á Írlandi og víðar vernduðu og skráðu skrifaða þekkingu sem áður hafði safnast saman.


Undir lok 8. aldar var Hið heilaga rómverska ríki stofnað sem eins konar arftaki Vest-rómverska ríkisins en var í raun laustengt samband ýmissa smáríkja í Mið-Evrópu. Austurhluti Rómaveldis varð Austrómverska ríkið, með Konstantínópel (Býzantíon, síðar Istanbúl) sem höfuðborg. Árið 1453, þegar Ottómanveldið yfirtók Konstantínópel, riðaði Austrómverska ríkið til falls.


Endurreisnin og nýju konungsdæmin á 15. öld mörkuðu upphaf tímabils rannsókna, uppgötvana og meiri vísindalegrar þekkingar. Þá hóf Portúgal og skömmu síðar Spánn landvinningana. Síðar fylgdu Frakkland, Holland og Bretland í fótspor þeirra. Með nýlendustefnunni byggðu þessi lönd upp víðfeðm nýlenduveldi í Afríku, Suður- og Norður-Ameríku og Asíu.


Eftir landvinningana miklu tók lýðræðisleg hugsun við í Evrópu. Barátta gegn einræði varð meiri, sérstaklega í Frakklandi í Frönsku byltingunni. Þetta leiddi til gríðarlegra umbrota í Evrópu meðan þessar byltingakenndu hugmyndir og hugsjónir breiddust út um álfuna. Lýðræði leiddi til aukinnar spennu í Evrópu ofan á þá spennu sem fyrir var vegna samkeppninnar við nýja heiminn. Frægustu átökin urðu þegar Napóleon Bónaparte komst til valda og hóf að hertaka nálæg lönd, og byggði þannig upp nýtt franskt stórveldi, sem þó féll skömmu seinna. Eftir þessa landvinninga varð Evrópa aftur stöðug, en byrjað var að hrikta í gömlu undirstöðunni.





Evrópufáninn, fáni Evrópusambandsins.


Iðnbyltingin hófst í Bretlandi seint á 18. öld, en með henni dró úr mikilvægi landbúnaðar, almenn hagsæld jókst og fólki fjölgaði. Mörg af ríkjunum í Evrópu komust í núverandi form eftir fyrri heimsstyrjöldina. Frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar og fram til þess að kalda stríðinu lauk skiptist Evrópa í tvær pólitískar og efnahagslegar blokkir: kommúnistaríki í Austur-Evrópu (Tyrkland og Grikkland eru undantekningar), sem byggðu á áætlunarbúskap, og kapítalistaríki í Suður- og Vestur-Evrópu, sem byggðust á markaðshagkerfi. Um árið 1990 féll Berlínarmúrinn og með honum Járntjaldið og Sovétríkin liðuðust í sundur.


Frá lokum seinni heimsstyrjaldar hefur samstarf evrópskra ríkja verið einkennandi fyrir álfuna og hefur breiðst til Austur-Evrópu eftir kalda stríðið. Evrópubandalagið og síðar Evrópusambandið er bandalag 27 ríkja um samvinnu á ýmsum sviðum. Það hefur þróast úr friðar- og efnahagssamstarfi í einingu sem svipar til ríkjabandalags. NATO hefur líka stækkað frá enda kalda stríðsins og mörg austur-evrópsk ríki hafa gengið í það.



Staðhættir og landamörk |




Fjallið Matterhorn í Ölpunum


Landfræðilega er Evrópa vestasti hluti mun stærra landflæmis sem kallast Evrasía. Heimsálfan byrjar við Úralfjöll í Rússlandi, sem skilgreina austurmörk álfunnar við Asíu. Suðausturmörkin eru ekki staðfest. Úralfjöll eða Emba-fljót eru bæði mögulegir kostir. Mörkin halda áfram yfir Kaspíahaf, Kákasus-fjöll (eða Kura-fljót) og um Svartahafið, gegnum Bospórussund, Marmarahafið og Dardanellasund og út í Eyjahaf en þar gilda landamæri Tyrklands og Grikklands. Mörkin halda svo áfram um Miðjarðarhaf í suðri, N-Atlantshafið í vestri (Ísland er á mörkum Evrópu) og um N-Íshafið í norðri.


Vegna pótitísks og menningarlegs mismunar eru til margar lýsingar á mörkum Evrópu. Sumir telja ákveðin svæði ekki í Evrópu en aðrir telja þau í henni. Til dæmis telja landafræðingar frá Rússlandi og öðrum fyrrum sovétlöndum að Úralfjöllin séu í Evrópu en Kákasus-svæðið í Asíu.


Önnur notkun á orðinu Evrópa er stytting fyrir Evrópusambandið og meðlimi þess og nokkur önnur ríki sem eru talin ætla sér að ganga í sambandið í framtíðinni. Þessi skilgreining á hins vegar ekki við um lönd utan sambandsins, t.d. Noreg, Sviss og Ísland.



Staðhættir |


Hæðarmunur í Evrópu getur verið mjög mikill á milli tiltölulega lítilla svæða. Suður-Evrópa er fjalllendari en í norðurátt lækkar landið frá háum fjallgörðum eins og Ölpunum, Pýreneafjöllum og Karpatafjöllum og breytist úr hálendu fjallsvæði í hæðir og hóla og loks í láglendar og frjósamar sléttur í norðri og sömuleiðis í austri þar sem þær eru mjög stórar. Þetta risavaxna láglendi er þekkt sem evrópska sléttan og hjarta þess er í norður-þýsku sléttunni. Í Norðvestur-Evrópu liggur langur fjallgarður, frá Bretlandseyjum og um ögrum skorinn Skandinavíuskagann norður til Kólaskaga. Helstu ám í Evrópu má skipta í tvo flokka, annars vegar straumhörð fljót sem koma úr fjallgörðum, t.d. Dóná, Rín og Rón, og hins vegar lygn fljót sem aðallega má finna á hinum miklu sléttum austar í álfunni eins og Volga, Dnépr og Don.


Þetta er einfölduð lýsing. Svæði eins og Íberíuskaginn og Ítalía hafa hvert sína eigin flóknu landfræðieiginleika, eins og meginland Evrópu. Þar er að finna margar hásléttur, árdali og víðáttumikla dali sem ekki fylgja aðalstefnunni. Ísland og Bretlandseyjar eru sérstök tilfelli. Ísland myndaðist fyrir tilstilli flekamóta N-Ameríkuflekans og Evrasíuflekans. Bretland var eitt sinn tengt meginlandinu en vegna hækkandi sjávarstöðu myndaðist Ermarsundið milli þess og meginlandsins.



Lönd |


Eftirfarandi er kort af Evrópu og þau lönd sem henni tilheyra.





Alb.

And.

Austurríki

Armenía

Aser.

Hvíta-Rússland

Belgía

Bosnía

Búlgaría

Króatía

Kýpur

Tékkland

Danmörk

Eistland

Finnland

Frakkland

Þýskaland

Georgía

Grikkland

Grænland (Dk)

Ungverjaland

Ísland

Írland

Ítalía

S. Mar.

Kasakstan

Kos.

Lettland

Liec.

Litháen

Lux.

Mak.

Malta

Moldóva

Mon.

Svart.

Holl.

Noregur

Svalbarði (Nor.)

Pólland

Portúgal

Rúmenía

Rússland

Serbía

Slóvakía

Slo.

Spánn

Svíþjóð

Sviss

Tyrkland

Úkraína

Bretland

Fær. (Dk.)

Vat.



Adría-

haf

Norðuríshaf

Eyjahaf

Barentshaf

Biskaja-
flói

Svarta-
haf

Asóvs-
haf

Kaspía-
haf

Kelta-
haf

Grænlandshaf

Baffinflói

Cadiz-
flói

Lígúríu-
haf

Miðjarðarhaf

Norður-
Atlantshaf

Norður-
sjór

Noregshaf

Gíbraltarsund







Vennmynd sem sýnir skiptingu yfirþjóðlegra samtaka innan Evrópu



Menning |


Aðalgrein: Evrópsk menning

Segja má að menning Evrópu sé sambland af menningu ýmissa smærri svæða sem skarast. Greina má merki blandaðrar menningar um heimsálfuna þvera og endilanga. Spurningin um sameiginlega menningu Evrópu eða evrópska kjarnamenningu er því flókin.


Grunninn að evrópskri menningu er að finna í menningu, sögu og bókmenntum Forngrikkja og Rómverja. Við þennan grunn bættist svo kristni, sem varð ríkjandi trú og mótaði heimsmynd Evrópumanna frá síðfornöld og upp gegnum miðaldir. Endurreisnin á 15. öld og siðaskiptin höfðu áhrif úti um alla Evrópu, eins og upplýsingin á 18. öld.



Heimildir |


  • Fyrirmynd greinarinnar var „Europe“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 16. júní 2006.


Tengt efni |


  • Evrópuráðið

  • Evrópusambandið

  • Listi yfir stærstu borgir Evrópusambandsins


Tenglar |





 




Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Evrópu




  • Vísindavefurinn: „Hvaða lönd teljast til Evrópu?“









Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Evrópa&oldid=1631948“










Leiðsagnarval



























(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.272","walltime":"0.327","ppvisitednodes":"value":4173,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":97475,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":15216,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":10,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":0,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 138.801 1 -total"," 68.04% 94.445 6 Snið:Navbox"," 52.18% 72.420 1 Snið:Heimsálfur"," 26.50% 36.779 1 Snið:Kort_af_Evrópu"," 25.24% 35.040 4 Snið:Navbox_with_columns"," 15.91% 22.079 73 Snið:Image_label_small"," 10.43% 14.482 73 Snið:Image_label"," 5.54% 7.684 1 Snið:Evrópa"," 3.55% 4.921 1 Snið:Commons"," 3.47% 4.817 2 Snið:Aðalgrein"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.018","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":1008726,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1296","timestamp":"20190429175600","ttl":2592000,"transientcontent":false);mw.config.set("wgBackendResponseTime":109,"wgHostname":"mw1328"););

Popular posts from this blog

Bruad Bilen | Luke uk diar | NawigatsjuunCommonskategorii: BruadCommonskategorii: RunstükenWikiquote: Bruad

What is the offset in a seaplane's hull?

Slayer Innehåll Historia | Stil, komposition och lyrik | Bandets betydelse och framgångar | Sidoprojekt och samarbeten | Kontroverser | Medlemmar | Utmärkelser och nomineringar | Turnéer och festivaler | Diskografi | Referenser | Externa länkar | Navigeringsmenywww.slayer.net”Metal Massacre vol. 1””Metal Massacre vol. 3””Metal Massacre Volume III””Show No Mercy””Haunting the Chapel””Live Undead””Hell Awaits””Reign in Blood””Reign in Blood””Gold & Platinum – Reign in Blood””Golden Gods Awards Winners”originalet”Kerrang! Hall Of Fame””Slayer Looks Back On 37-Year Career In New Video Series: Part Two””South of Heaven””Gold & Platinum – South of Heaven””Seasons in the Abyss””Gold & Platinum - Seasons in the Abyss””Divine Intervention””Divine Intervention - Release group by Slayer””Gold & Platinum - Divine Intervention””Live Intrusion””Undisputed Attitude””Abolish Government/Superficial Love””Release “Slatanic Slaughter: A Tribute to Slayer” by Various Artists””Diabolus in Musica””Soundtrack to the Apocalypse””God Hates Us All””Systematic - Relationships””War at the Warfield””Gold & Platinum - War at the Warfield””Soundtrack to the Apocalypse””Gold & Platinum - Still Reigning””Metallica, Slayer, Iron Mauden Among Winners At Metal Hammer Awards””Eternal Pyre””Eternal Pyre - Slayer release group””Eternal Pyre””Metal Storm Awards 2006””Kerrang! Hall Of Fame””Slayer Wins 'Best Metal' Grammy Award””Slayer Guitarist Jeff Hanneman Dies””Bullet-For My Valentine booed at Metal Hammer Golden Gods Awards””Unholy Aliance””The End Of Slayer?””Slayer: We Could Thrash Out Two More Albums If We're Fast Enough...””'The Unholy Alliance: Chapter III' UK Dates Added”originalet”Megadeth And Slayer To Co-Headline 'Canadian Carnage' Trek”originalet”World Painted Blood””Release “World Painted Blood” by Slayer””Metallica Heading To Cinemas””Slayer, Megadeth To Join Forces For 'European Carnage' Tour - Dec. 18, 2010”originalet”Slayer's Hanneman Contracts Acute Infection; Band To Bring In Guest Guitarist””Cannibal Corpse's Pat O'Brien Will Step In As Slayer's Guest Guitarist”originalet”Slayer’s Jeff Hanneman Dead at 49””Dave Lombardo Says He Made Only $67,000 In 2011 While Touring With Slayer””Slayer: We Do Not Agree With Dave Lombardo's Substance Or Timeline Of Events””Slayer Welcomes Drummer Paul Bostaph Back To The Fold””Slayer Hope to Unveil Never-Before-Heard Jeff Hanneman Material on Next Album””Slayer Debut New Song 'Implode' During Surprise Golden Gods Appearance””Release group Repentless by Slayer””Repentless - Slayer - Credits””Slayer””Metal Storm Awards 2015””Slayer - to release comic book "Repentless #1"””Slayer To Release 'Repentless' 6.66" Vinyl Box Set””BREAKING NEWS: Slayer Announce Farewell Tour””Slayer Recruit Lamb of God, Anthrax, Behemoth + Testament for Final Tour””Slayer lägger ner efter 37 år””Slayer Announces Second North American Leg Of 'Final' Tour””Final World Tour””Slayer Announces Final European Tour With Lamb of God, Anthrax And Obituary””Slayer To Tour Europe With Lamb of God, Anthrax And Obituary””Slayer To Play 'Last French Show Ever' At Next Year's Hellfst””Slayer's Final World Tour Will Extend Into 2019””Death Angel's Rob Cavestany On Slayer's 'Farewell' Tour: 'Some Of Us Could See This Coming'””Testament Has No Plans To Retire Anytime Soon, Says Chuck Billy””Anthrax's Scott Ian On Slayer's 'Farewell' Tour Plans: 'I Was Surprised And I Wasn't Surprised'””Slayer””Slayer's Morbid Schlock””Review/Rock; For Slayer, the Mania Is the Message””Slayer - Biography””Slayer - Reign In Blood”originalet”Dave Lombardo””An exclusive oral history of Slayer”originalet”Exclusive! Interview With Slayer Guitarist Jeff Hanneman”originalet”Thinking Out Loud: Slayer's Kerry King on hair metal, Satan and being polite””Slayer Lyrics””Slayer - Biography””Most influential artists for extreme metal music””Slayer - Reign in Blood””Slayer guitarist Jeff Hanneman dies aged 49””Slatanic Slaughter: A Tribute to Slayer””Gateway to Hell: A Tribute to Slayer””Covered In Blood””Slayer: The Origins of Thrash in San Francisco, CA.””Why They Rule - #6 Slayer”originalet”Guitar World's 100 Greatest Heavy Metal Guitarists Of All Time”originalet”The fans have spoken: Slayer comes out on top in readers' polls”originalet”Tribute to Jeff Hanneman (1964-2013)””Lamb Of God Frontman: We Sound Like A Slayer Rip-Off””BEHEMOTH Frontman Pays Tribute To SLAYER's JEFF HANNEMAN””Slayer, Hatebreed Doing Double Duty On This Year's Ozzfest””System of a Down””Lacuna Coil’s Andrea Ferro Talks Influences, Skateboarding, Band Origins + More””Slayer - Reign in Blood””Into The Lungs of Hell””Slayer rules - en utställning om fans””Slayer and Their Fans Slashed Through a No-Holds-Barred Night at Gas Monkey””Home””Slayer””Gold & Platinum - The Big 4 Live from Sofia, Bulgaria””Exclusive! Interview With Slayer Guitarist Kerry King””2008-02-23: Wiltern, Los Angeles, CA, USA””Slayer's Kerry King To Perform With Megadeth Tonight! - Oct. 21, 2010”originalet”Dave Lombardo - Biography”Slayer Case DismissedArkiveradUltimate Classic Rock: Slayer guitarist Jeff Hanneman dead at 49.”Slayer: "We could never do any thing like Some Kind Of Monster..."””Cannibal Corpse'S Pat O'Brien Will Step In As Slayer'S Guest Guitarist | The Official Slayer Site”originalet”Slayer Wins 'Best Metal' Grammy Award””Slayer Guitarist Jeff Hanneman Dies””Kerrang! Awards 2006 Blog: Kerrang! Hall Of Fame””Kerrang! Awards 2013: Kerrang! Legend”originalet”Metallica, Slayer, Iron Maien Among Winners At Metal Hammer Awards””Metal Hammer Golden Gods Awards””Bullet For My Valentine Booed At Metal Hammer Golden Gods Awards””Metal Storm Awards 2006””Metal Storm Awards 2015””Slayer's Concert History””Slayer - Relationships””Slayer - Releases”Slayers officiella webbplatsSlayer på MusicBrainzOfficiell webbplatsSlayerSlayerr1373445760000 0001 1540 47353068615-5086262726cb13906545x(data)6033143kn20030215029