Skip to main content

Dvergar (norræn goðafræði) Þekktir dvergar í Norrænni goðafræði | Dverganöfnin í Völuspá | Tilvísanir | LeiðsagnarvalVöluspá, nútímastafsett af Guðna Jónssynibæta við greininab

Dvergar í norrænni goðafræði


norrænnar goðafræðiSnorra-EddujötunsinsÝmisVöluspáEddukvæðafornaldarsögum NorðurlandaMjölniÞórsAskur og EmblaDraupniHervarar sögu












Dvergar (norræn goðafræði)




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu






Jump to navigation
Jump to search




Tveir dvergar eins og þeir voru túlkaðir í útgáfu af Völuspá, frá árinu 1895 af Lorenz Frølich.


Dvergar samkvæmt sköpunarsögu norrænnar goðafræði eins og hún birtist í Snorra-Eddu eru sagðir hafa kviknað í holdi jötunsins Ýmis líkt og maðkar, uns goðin hafi gefið þeim vitund. Í Völuspá Eddukvæða aftur á móti er sköpun þeirra lýst þannig að þeir hafi verið skapaðir af blóði Brimis og beinum Bláins. Þeir koma fyrir bæði í Snorra-Eddu og Eddukvæðum og fornaldarsögum Norðurlanda en leika þó sjaldnast stór hlutverk í sögunum, þó er undantekning frá því sem eru Norðri, Suðri, Austri og Vestri sem halda uppi sjálfri himinhvelfingunni. Ekki eru þó margir dvergar nefndir til sögunnar, og þá einna helst sem smiðir hinna ýmissu gersema og vopna og má þar sem dæmi nefna Mjölni, hamar Þórs.


Þeim er yfirleitt lýst sem litlum dökkleitum eða svörtum verum sem lifa í steinum eða neðanjarðar og eru þekktastir fyrir að vera afburða völundarsmiðir. Margir fræðimenn hafa staðsett þá mitt á milli goða og jötna, með sköpunarhæfileika líkt og goðin en dvelja í myrkraveröld líkt og jötnar.
Til marks um það er að hægt er að lesa út úr Völuspá að fyrstu mannverurnar, Askur og Embla, hafi verið sköpuð af dvergum en goðin þrjú sem fundu þau hafi blásið þeim lífsandann. Ekki eru þó allir fræðimenn sammála þessarri túlkun. Eins hefur verið bent á að Svartálfar, líkt og dvergar, eru sagðir búa í Svartálfaheimi og hafi því mögulega verið sömu verur og dvergar.[1]



Þekktir dvergar í Norrænni goðafræði |


Meðal þeirra þekktustu eru Norðri, Suðri, Austri og Vestri sem halda uppi himinhvelfingunni eins og að ofan er getið, Brokkur og Sindri sem smíðuðu þrjár gjafir til ása, hringinn Draupni, svínið Gullinbursta og hamarinn Mjölni og svo Dvalinn og Durinn sem smíðuðu sverðið Tyrfingur í Hervarar sögu.



Dverganöfnin í Völuspá |


9.


Þá gengu regin öll

á rökstóla,

ginnheilög goð,

ok um þat gættusk,

hverir skyldi dverga

dróttir skepja

ór Brimis blóði

ok ór Bláins leggjum.

10.


Þar var Móðsognir

mæztr of orðinn

dverga allra,

en Durinn annarr;

þeir mannlíkun

mörg of gerðu

dvergar í jörðu,

sem Durinn sagði.

11.


Nýi, Niði,

Norðri, Suðri,

Austri, Vestri,

Alþjófr, Dvalinn,

Nár ok Náinn

Nípingr, Dáinn

Bívurr, Bávurr,

Bömburr, Nóri,

Ánn ok Ánarr,

Óinn, Mjöðvitnir.

12.


Veggr ok Gandalfr,

Vindalfr, Þorinn,

Þrár ok Þráinn,

Þekkr, Litr ok Vitr,

Nýr ok Nýráðr,

nú hefi ek dverga,

Reginn ok Ráðsviðr,

rétt of talða.

13.


Fíli, Kíli,

Fundinn, Náli,

Hefti, Víli,

Hannar, Svíurr,

Billingr, Brúni,

Bíldr ok Buri,

Frár, Hornbori,

Frægr ok Lóni,

Aurvangr, Jari,

Eikinskjaldi.

14.


Mál er dverga

í Dvalins liði

ljóna kindum

til Lofars telja,

þeir er sóttu

frá salar steini

Aurvanga sjöt

til Jöruvalla.

15.


Þar var Draupnir

ok Dolgþrasir,

Hár, Haugspori,

Hlévangr, Glóinn,

Dóri, Óri

Dúfr, Andvari

Skirfir, Virfir,

Skáfiðr, Ái.

16.


Alfr ok Yngvi,

Eikinskjaldi,

Fjalarr ok Frosti,

Finnr ok Ginnarr;

þat mun æ uppi

meðan öld lifir,

langniðja tal

Lofars hafat.[2]


Tilvísanir |




  1. Simek (2007:305), Orchard (1997:35), and Hafstein (2002:111).


  2. Völuspá, nútímastafsett af Guðna Jónssyni




  Þessi trúarbragðagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.









Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Dvergar_(norræn_goðafræði)&oldid=1630077“










Leiðsagnarval



























(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.116","walltime":"0.142","ppvisitednodes":"value":1308,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":28588,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":1274,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":6,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":763,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 61.355 1 -total"," 44.99% 27.605 1 Snið:Stubbur"," 31.49% 19.320 1 Snið:Reflist"," 23.28% 14.283 1 Snið:Norræn_goðafræði"," 17.75% 10.890 1 Snið:Navbox"," 1.24% 0.760 1 Snið:Main_other"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.007","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":776528,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1322","timestamp":"20190425155801","ttl":2592000,"transientcontent":false);mw.config.set("wgBackendResponseTime":91,"wgHostname":"mw1247"););

Popular posts from this blog

He _____ here since 1970 . Answer needed [closed]What does “since he was so high” mean?Meaning of “catch birds for”?How do I ensure “since” takes the meaning I want?“Who cares here” meaningWhat does “right round toward” mean?the time tense (had now been detected)What does the phrase “ring around the roses” mean here?Correct usage of “visited upon”Meaning of “foiled rail sabotage bid”It was the third time I had gone to Rome or It is the third time I had been to Rome

Bunad

Færeyskur hestur Heimild | Tengill | Tilvísanir | LeiðsagnarvalRossið - síða um færeyska hrossið á færeyskuGott ár hjá færeyska hestinum