Vár Ritaðar heimildir um Vár | Túlkanir | Tilvísanir | Leiðsagnarval„Þrymskviða“„Ásynjur“„Gylfaginning“Runic Amulets and Magic Objectsb
Ásynjur
norrænni goðafræðiSæmundaredduÞrymurFreyjuÞórMjölniÁsatrúarfélagiðEdduSnorra SturlusonarásynjumBergenNoregiRudolf SimekSáguHlínSjöfnSnotruVörmatrónur
Vár
Jump to navigation
Jump to search
Vár er gyðja í norrænni goðafræði sem tengist eiðum, samningum og sáttmálum, sér í lagi á milli karla og kvenna. Nafn hennar birtist í ýmsum skáldskaparkenningum fyrir konur og í gömlum eiðum, meðal annars í hjónabandsvígslum.
Ritaðar heimildir um Vár |
Nafn Várar kemur fyrir í giftingareið sem birtist í Þrymskviðu í Sæmundareddu. Þegar jötunninn Þrymur hyggst ganga að eiga Freyju (sem er í raun Þór í dulargervi) fyrir konu vígir hann hjónabandið með hamrinum Mjölni og þylur upp eftirfarandi eið:
|
Vígslan í Þrymskviðu er talin lýsandi fyrir forna hjónabandseiða. Þegar íslenska Ásatrúarfélagið vígir hjónabönd í dag er notast við svipaðan eið og eru hjónin þá vígð saman undir Várar hendi í heiðnum brúðkaupum.[2]
Í 35. kafla Gylfaginningar í Eddu Snorra Sturlusonar er upptalning á ásynjum þar sem Vár er sú níunda í röðinni. Þar er sagt um hana:
| Níunda Vár. Hún hlýðir á eiða manna og einkamál er veita sín á milli konur og karlar. Því heita þau mál várar. Hún hefnir og þeim er brigða.[3] |
Nafn Várar birtist í rúnaáletrun sem fannst á trjábút nærri Bergen í Noregi og er talinn vera frá byrjun 14. aldar. Í áletruninni stendur:
|
„Vitur Vár víra“ þýðir í þessu samhengi vitur, skartklædd kona. Kvæðið hefur verið skýrt sem svo að höfundurinn sé að kvarta yfir því að konur eða hjónaband sé honum til ama; þ.e. lætur hann „sitja óglaðan“.[4]
Túlkanir |
Sumir fræðimenn, meðal þeirra Andy Orchard, hafa dregið í efa að hjónabandsvígslan í Þrymskviðu þar sem vísað er til Várar sé í raun forn og hafi verið notuð í heiðnum brúðkaupum.[5] Britt-Mari Näsström telur að Vár hafi upphaflega verið annað nafn á Freyju en hafi síðar orðið til sem sjálfstæð gyðja.[6]
Textafræðingurinn Rudolf Simek telur að vænlegast sé að líta á gyðjurnar Vár, Ságu, Hlín, Sjöfn, Snotru, og Vör sem lauslega skilgreindar verndargyðjur kvenna sem beri hver um sig ábyrgð á tilteknu sviði einkalífsins. Greinileg skil séu milli verksviða þeirra, sem minni nokkuð á matrónur sem tilbeðnar voru í germanskri og keltneskri heiðni.[7]
Tilvísanir |
↑ „Þrymskviða“. Heimskringla, skoðað þann 25. apríl 2019.
↑ 2,02,1 „Ásynjur“. Ásatrúarfélagið, skoðað þann 25. apríl 2019.
↑ Snorri Sturluson. „Gylfaginning“. Snerpa, skoðað þann 25. apríl 2019.
↑ Macleod, Mindy. Mees, Bernard (2006). Runic Amulets and Magic Objects. Boydell Press. ISBN 1-84383-205-4
, bls. 59.
↑ Orchard, Andy (1997). Dictionary of Norse Myth and Legend. Cassell. ISBN 0-304-34520-2
↑ Näsström, Britt-Mari (2003). Freyja - the great Goddess of the North. Harwich Port: Clock & Rose, 2003. First published: University of Lund, 1995. ISBN 1-59386-019-6
, bls. 83.
↑ Rudolf Simek: Lexikon der germanischen Mythologie (Kröners Taschenausgabe. Band 368). 3., völlig überarbeitete Auflage. Kröner, Stuttgart 2006, ISBN 3-520-36803-X
, bls. 368.
Flokkur:
- Ásynjur
(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.112","walltime":"0.161","ppvisitednodes":"value":787,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":30224,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":1610,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":5,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":3770,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 93.664 1 -total"," 34.91% 32.698 4 Snið:ISBN"," 22.84% 21.392 3 Snið:Tilvitnun2"," 15.57% 14.582 1 Snið:Norræn_goðafræði"," 13.47% 12.616 3 Snið:Vefheimild"," 11.21% 10.498 1 Snið:Navbox"," 3.55% 3.323 6 Snið:Smella"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.008","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":787840,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1339","timestamp":"20190425224135","ttl":2592000,"transientcontent":false);mw.config.set("wgBackendResponseTime":83,"wgHostname":"mw1251"););