Skip to main content

Iðunn (norræn goðafræði) Gulleplunum stolið | Heimildir | Leiðsagnarvalb

Ásynjur


norrænni goðafræðigoðunumskáldskaparguðsinsBragaSkáldskaparmálaEdduSnorra SturlusonarLokiHænirjötunninnÞjassiÁsgarðsJötunheimaFreyju












Iðunn (norræn goðafræði)




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu






Jump to navigation
Jump to search




Iðunn með gullepplin.


Iðunn er gyðja í norrænni goðafræði sem gegnir því hlutverki að gæta gulleplanna sem tryggja goðunum eilífa æsku. Iðunn er kona skáldskaparguðsins Braga.



Gulleplunum stolið |


Í upphafi Skáldskaparmála í Eddu Snorra Sturlusonar segir frá því að eitt sinn var gulleplunum stolið. Það gerðist þannig að Loki og Hænir voru saman á ferðalagi og reyndu að steikja sér kjöt en það gekk eitthvað illa. Fyrir ofan þá sat stór örn á grein (en hann var reyndar jötunninn Þjassi í dulargervi) og hann bauðst til að hjálpa þeim að steikja kjötið gegn því að fá hluta af því. Þegar kjötið var orðið steikt flaug fuglinn hinsvegar á brott með allt kjötið. Loki varð mjög reiður og sló til fuglins með staur, staurinn festist við fætur fuglsins og Loki var þannig dreginn langa leið með fuglinum. Þjassi neitaði að láta hann lausann nema hann lofaði að gefa honum bæði Iðunni og gulleplin hennar. Þegar Loki kom aftur til Ásgarðs lokkaði hann Iðunni út í skóg með eplin og Þjassi kom þar fljúgandi í arnarlíki, greip Iðunni og flaug með hana með sér til Jötunheima.


Umsvifalaust tóku goðin þá að eldast því ef þau fá ekki að bíta af eplum Iðunnar eldast þau líkt og dauðlegir menn. Þau komust að svikum Loka og sendu hann til að ná Iðunni aftur. Loki fékk lánaðan valsham Freyju og flaug til hallar Þjassa. Þar breytti hann Iðunni í hnetu og flaug af stað með hana í klónum. Þjassi jötunn tók hinsvegar eftir því og elti þau í arnarham en þegar Loki flaug inn yfir Ásgarð kveiktu æsirnir í spónahrúgu svo að vængir Þjassa sviðnuðu er hann flaug yfir eldinn og hann féll til jarðar. Æsirnir drápu hann og glöddust yfir að hin dýrmætu epli væru komin aftur til Ásgarðs og þeim var tryggð eilíf æska á ný.



Heimildir |





 

Einkennismerki Wikiorðabókar



Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
Iðunn






 




Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Iðunni



  • Roy Willis. Goðsagnir heimsins. 1998. Mál og menning, Reykjavík.








Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Iðunn_(norræn_goðafræði)&oldid=1630118“










Leiðsagnarval



























(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.100","walltime":"0.133","ppvisitednodes":"value":193,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":27278,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":226,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":6,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":0,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 48.725 1 -total"," 67.75% 33.009 1 Snið:Norræn_goðafræði"," 58.67% 28.587 1 Snið:Navbox"," 20.84% 10.154 1 Snið:Commonscat"," 10.94% 5.329 1 Snið:Wikiorðabók"," 9.29% 4.524 1 Snið:Commons"," 6.13% 2.988 2 Snið:Smella"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.008","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":769730,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1273","timestamp":"20190425170344","ttl":2592000,"transientcontent":false););"@context":"https://schema.org","@type":"Article","name":"Iu00f0unn (norru00e6n gou00f0afru00e6u00f0i)","url":"https://is.wikipedia.org/wiki/I%C3%B0unn_(norr%C3%A6n_go%C3%B0afr%C3%A6%C3%B0i)","sameAs":"http://www.wikidata.org/entity/Q204691","mainEntity":"http://www.wikidata.org/entity/Q204691","author":"@type":"Organization","name":"Contributors to Wikimedia projects","publisher":"@type":"Organization","name":"Wikimedia Foundation, Inc.","logo":"@type":"ImageObject","url":"https://www.wikimedia.org/static/images/wmf-hor-googpub.png","datePublished":"2006-08-31T13:33:31Z","dateModified":"2019-03-27T18:20:58Z","image":"https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/9/92/There_Sat_Idun_With_Her_Beautiful_Hair_Falling_Over_Her_Shoulders.jpg"(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgBackendResponseTime":266,"wgHostname":"mw1273"););

Popular posts from this blog

He _____ here since 1970 . Answer needed [closed]What does “since he was so high” mean?Meaning of “catch birds for”?How do I ensure “since” takes the meaning I want?“Who cares here” meaningWhat does “right round toward” mean?the time tense (had now been detected)What does the phrase “ring around the roses” mean here?Correct usage of “visited upon”Meaning of “foiled rail sabotage bid”It was the third time I had gone to Rome or It is the third time I had been to Rome

Bunad

Færeyskur hestur Heimild | Tengill | Tilvísanir | LeiðsagnarvalRossið - síða um færeyska hrossið á færeyskuGott ár hjá færeyska hestinum