Skip to main content

Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn Efnisyfirlit Saga | Hlutverk | Þjóðarbókhlaðan | Tilvísanir | Tenglar | Leiðsagnarval„Samstarfssamningur Háskóla Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns“Tillaga til þingsályktunar - um sameining Landsbókasafns og Háskólabókasafns o.fl.Vefsíða safnsinsLög um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn

Opinberar stofnanirByggingar í ReykjavíkÍslensk bókasöfnLandsbókasöfnSöfn í ReykjavíkVesturbær ReykjavíkurStofnað 1994


þjóðbókasafnÍslandsháskólabókasafnfræðiritabókasafnlandsbókavörður1. desemberLandsbókasafns ÍslandsHáskólabókasafnsMelunumVesturbæ ReykjavíkurHringbrauthandritíslenskri tónlistISBN-ISSN-númeraVeraldarvefnumGegnirTímarit.isHandrit.isVefsafn.isBækur.is6. áratugÞorkels JóhannessonarþingsályktunartillagaSafnahúsið1974UNESCOþjóðhátíðarnefndarGylfi Þ. Gíslasonfjárlögumfyrstu skóflustunguÞorvald S. ÞorvaldssonManfreð VilhjálmssonArkitektafélag ÍslandsBirkimelOlíukreppanþjóðhátíðarmyntarReykjavíkurborgMelavöllinnVilhjálmur HjálmarssonVigdís Finnbogadóttirhornstein23. septemberálskildireignaskattsSverrir HermannssonHappdrætti Háskóla ÍslandsViðeyjarstjórninlandsbókavörðurKringluna28. september201111. maí1994Landsbókasafn ÍslandsmenntamálaráðherraskylduskilahljóðritumUpplýsingatækniTímarit.ishandritaHandrit.isBirkimelVesturbæ ReykjavíkurHringbrautálskjöldumJapanstigahúsumbrúsíkiÞráðlaust netVeitingastofa












Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

(Endurbeint frá Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn)





Jump to navigation
Jump to search




Þjóðarbókhlaðan að vetri til


Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn (Þjóðarbókhlaðan) hefur það tvíþætta hlutverk að vera þjóðbókasafn Íslands, sem þaulsafnar útgefnu íslensku prentefni og hljóðritum, og háskólabókasafn, en safnið á stærsta safn fræðirita á landinu. Safnið er bókasafn Háskóla Íslands og því er þjónusta þess við skólann skilgreind með sérstökum samningi.[1] Þess utan er safnið öllum opið. Forstöðumaður safnsins hefur titilinn landsbókavörður.


Safnið var opnað 1. desember 1994 eftir sameiningu Landsbókasafns Íslands og Háskólabókasafns í Þjóðarbókhlöðunni sem stendur á Melunum í Vesturbæ Reykjavíkur nálægt Hringbraut.


Safnkosturinn er um milljón titlar af ýmsu tagi sem skiptist í nokkur söfn: þeirra á meðal eru þjóðbókasafnið, handrit og sérsöfn einstaklinga sem aðeins er hægt að skoða á sérstökum lestrarsal á fyrstu hæð í Þjóðarbókhlöðu, tón- og myndsafn safnar íslenskri tónlist sem hægt er að hlusta á á efstu hæð, og dagblöð og tímarit er hægt að lesa á þriðju hæð. Stærstan hluti fræðirita og bókmenntarita safnsins er hins vegar hægt að skoða í hillum og taka að láni.


Starfsmenn safnsins eru tæplega áttatíu. Safnið rekur meðal annars upplýsingaþjónustu fyrir skóla og atvinnulíf, landsmiðstöð millisafnalána, bókbandsstofu og skráningardeild. Safnið sér líka um úthlutun ISBN- og ISSN-númera fyrir íslenska bóka- og tímaritaútgáfu og heldur utan um íslenska útgáfuskrá. Á síðustu árum hefur safnið staðið að stórum verkefnum sem ganga út á að veita aðgang að safnkostinum á Veraldarvefnum. Dæmi um slík verkefni eru Gegnir (samskrá íslenskra bókasafna), Tímarit.is (dagblöð og tímarit), Handrit.is (handrit), Vefsafn.is (vefsíður) og Bækur.is (bækur). Safnið heldur einnig utan um áskriftir ýmissa stofnana að stórum tilvísana- og gagnasöfnum og rafrænum tímaritum.




Efnisyfirlit





  • 1 Saga

    • 1.1 Þjóðargjöfin sem tafðist


    • 1.2 Bygging hússins


    • 1.3 Opnun Þjóðarbókhlöðu



  • 2 Hlutverk


  • 3 Þjóðarbókhlaðan


  • 4 Tilvísanir


  • 5 Tenglar




Saga |


Á 6. áratug síðustu aldar var farið að ræða um það að óhagkvæmt væri að byggja upp tvö vísindabókasöfn á landinu. Sérstök nefnd undir forsæti Þorkels Jóhannessonar rektors var skipuð til að fjalla um málið og árið 1957 var samþykkt þingsályktunartillaga um að sameina bæri Landsbókasafnið og Háskólabókasafnið sem allra fyrst í sérstöku húsnæði þar sem Safnahúsið myndi ekki nægja til að svara þörfum sameinaðs bókasafns.[2]


Í framhaldi af því var farið að ræða um byggingu sérstaks húsnæðis, „þjóðarbókhlöðu“, nálægt háskólanum og voru menn helst á því að ljúka ætti við bygginguna þjóðhátíðarárið 1974 þegar minnst yrði 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar. Ákveðið var að safnið yrði „gjöf þjóðarinnar til sjálfrar sín“ á þjóðhátíðinni. Söfnin hófu þá undirbúning og fengu meðal annars erlenda sérfræðinga í hönnun slíkra bókasafna frá UNESCO til ráðlegginga. 1970 var svo samþykkt nánast samhljóða þingsályktun þess efnis byggð á tillögu þjóðhátíðarnefndar sem Gylfi Þ. Gíslason bar fram. Þá var þegar búið að stofna byggingasjóð með reglulegu framlagi af fjárlögum til að fjármagna framkvæmdina.



Þjóðargjöfin sem tafðist |


Lyktir þjóðhátíðarmálsins þegar nær dró afmælinu urðu þær að hætt var við flestar tillögur þjóðhátíðarnefndar og fjármagn til verkefna skorið verulega niður. Ákveðið var að taka fyrstu skóflustungu að nýrri þjóðarbókhlöðu í stað þess að vígja bygginguna eins og upphaflega var ráðgert. Samið var við arkitektana Þorvald S. Þorvaldsson og Manfreð Vilhjálmsson um hönnun hússins en Arkitektafélag Íslands gagnrýndi að ekki hefði verið haldin samkeppni um hönnunina. Staðsetning bókhlöðunnar á Birkimel nokkurn spöl frá miðju háskólasvæðisins var líka gagnrýnd en þessari lóð hafði verið úthlutað af borginni á 150 ára afmæli Landsbókasafnsins 1968.


Þegar leið á árið 1974 varð ljóst að ekki væru til nægir peningar til að hefja framkvæmdir og þar við það sat næstu ár. Árin 1972 og 1975 hafði ríkissjóður tekið aftur framlag sitt til byggingasjóðs. Olíukreppan olli því meðal annars að afkoma ríkissjóðs versnaði næstu árin og ekkert varð því af framkvæmdum þótt viljinn væri fyrir hendi.



Bygging hússins |


Árið 1977 komst skriður á málið þegar ákveðið var að verja hluta ágóða af sölu þjóðhátíðarmyntar til byggingar þjóðarbókhlöðu. Samningar náðust við Reykjavíkurborg um gatnagerð og skipulag Birkimelssvæðisins og var meðal annars gert ráð fyrir því að færa Melavöllinn um set tímabundið, en áætlað var að hann hyrfi á brott þegar húsið yrði tekið í notkun. Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra, tók fyrstu skóflustungu að húsinu 28. janúar 1978. Eftir það var tekinn grunnur og steyptir sökklar og neðsta gólfplatan. Næstu ár var unnið að uppsteypu hússins og Vigdís Finnbogadóttir lagði hornstein að því 23. september 1981. 1983 var húsið nánast fullsteypt. Það ár komu til landsins sérsmíðaðir álskildir sem klæða það að utan.


Þótt húsið væri nú nánast fullbyggt var ljóst að töluvert fé vantaði upp á til að ljúka við frágang að innan og utan. Framkvæmdafé var enn skorið niður en 1986 var ákveðið að hluti eignaskatts skyldi renna til byggingarinnar árin 1987–89. Þetta var kallað „þjóðarátak til byggingar Þjóðarbókhlöðu“ en einn af forvígismönnum þess var Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra. Raunin varð hins vegar sú að einungis lítill hluti af eignaskattsaukanum rann til byggingarinnar. Samt var það stóraukið fjármagn miðað við fyrri ár. Steininn tók svo úr 1989 þegar ríkisstjórnin samþykkti að helmingur framkvæmdafjár næsta árs skyldi koma frá Happdrætti Háskóla Íslands. Háskólinn mótmælti þessari ráðstöfun á sjálfsaflafé skólans harðlega.



Opnun Þjóðarbókhlöðu |


Viðeyjarstjórnin ákvað 1991 að setja stóraukið fjármagn í síðustu áfangana til að verkinu lyki á tilsettum tíma sem var áætlað árið 1994. 1991–94 var unnið hörðum höndum að frágangi hússins að innan. 1. desember 1994, á hálfrar aldar afmæli lýðveldisins, var byggingin loks vígð og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn tók formlega til starfa. Fyrsti landsbókavörður hins nýstofnaða safns var skipaður Einar Sigurðsson fyrrum háskólabókavörður. Í aðdraganda opnunarinnar var talsvert rætt um að hinu nýja bókasafni væri þröngt skorinn stakkur varðandi rekstur og ætlaðir opnunartímar voru ekki í samræmi við það sem háskólanemar vildu helst. Nemendur hrundu því af stað söfnunarátaki til að safna rekstrarfé fyrir hið nýja safn. Þannig söfnuðust yfir 22 milljónir króna sem safnið fékk að gjöf við opnunina.


Við opnun safnsins nam heildarbyggingarkostnaður á þáverandi verðlagi 2,5 milljörðum króna. Yfir helmingur af því fé kom til síðustu fjögur ár byggingartímans. Mikið var rætt um hinn langa byggingatíma og var Þjóðarbókhlaðan borin saman við Kringluna sem var opnuð 1987 eftir aðeins þriggja ára framkvæmdir. Var þetta tekið sem dæmi um seinagang í opinberum framkvæmdum.



Hlutverk |


Hlutverk safnsins er skilgreint í lögum nr. 142 28. september 2011 sem leystu af hólmi eldri lög frá 1994 nr. 71 11. maí 1994 sem aftur leystu af hólmi lög um Landsbókasafn Íslands frá 1969. Í lögunum eru talin upp átján atriði sem teljast til hlutverks safnsins en nánar er kveðið á um það í reglugerð sem menntamálaráðherra setur. Helstu verkefni safnsins eru þau að þaulsafna íslensku efni, varðveita handritasöfn, sinna þörfum kennslu og rannsóknarstarfsemi við Háskóla Íslands og annast alhliða upplýsinga- og þekkingarmiðlun.


Safnið nýtur skylduskila á öllu prentuðu efni og hljóðritum sem gefin eru út á Íslandi. Það leitast jafnframt við að safna öllu efni sem tengist Íslandi og íslensku efni sem gefið er út erlendis.


Upplýsingatækni verður æ stærri þáttur í rekstri safnsins og meðal helstu verkefna á því sviði eru vefútgáfa íslenskra dagblaða og tímarita (Tímarit.is), söfnun íslenskra vefsíðna, og vefútgáfa íslenskra handrita (Handrit.is) meðal annarra.



Þjóðarbókhlaðan |


Höfuðstöðvar bókasafnsins eru í Þjóðarbókhlöðunni sem er 13.000 fermetra bygging sem stendur á Birkimel í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er fjögurra hæða hátt og mjög áberandi þar sem það stendur nálægt Hringbraut. Efstu tvær hæðirnar eru klæddar með rauðum álskjöldum sem voru sérsmíðaðir í Japan.


Þjóðarbókhlaðan er reglulegur ferningur með fjórum stigahúsum utanáliggjandi auk inngangs sem tengist aðalbyggingunni með brú þar sem gengið er inn á aðra hæð. Húsið stendur ofaní eins konar dæld eða skál þar sem neðst er grunnt síki fyllt með vatni. Húsið er fjórar hæðir og kjallari. Í kjallara eru bókageymslur og myndastofa. Á fyrstu hæð er aðstaða starfsfólks, skrifstofur, auk lestrarsals fyrir notendur handrita- og skjalasafna og Íslandssafns. Aðalinngangur safnsins er á annarri hæð þar sem er afgreiðsla, upplýsingaborð og handbókadeild, auk skrifstofa. Á þriðju og fjórðu hæð eru svo tímarit og bækur, auk tón- og myndsafns. Í húsinu eru yfir 500 sæti í lestraraðstöðu og nokkrar tölvur til afnota fyrir gesti. Þráðlaust net er í öllu húsinu. Veitingastofa er rekin á annarri hæð. Fyrir framan innganginn er hellulögð skál með vatni í.



Tilvísanir |




  1. „Samstarfssamningur Háskóla Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns“, skoðað þann 7. apríl 2014.


  2. Tillaga til þingsályktunar - um sameining Landsbókasafns og Háskólabókasafns o.fl., Árbók Landsbókasafns Íslands 1957




Tenglar |





 




Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni



  • Vefsíða safnsins


  • Lög um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn nr. 142 28. september 2011




Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Landsbókasafn_Íslands_–_Háskólabókasafn&oldid=1628183“










Leiðsagnarval



























(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.064","walltime":"0.088","ppvisitednodes":"value":317,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":2816,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":875,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":6,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":1009,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 41.161 1 -total"," 65.88% 27.116 1 Snið:Reflist"," 26.42% 10.875 1 Snið:Commonscat"," 16.16% 6.652 1 Snið:Commons"," 12.24% 5.039 1 Snið:Vefheimild"," 6.78% 2.791 3 Snið:Lög"," 6.38% 2.627 1 Snið:Smella"," 3.98% 1.640 1 Snið:Main_other"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.003","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":537286,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1325","timestamp":"20190412232858","ttl":2592000,"transientcontent":false););"@context":"https://schema.org","@type":"Article","name":"Landsbu00f3kasafn u00cdslands u2013 Hu00e1sku00f3labu00f3kasafn","url":"https://is.wikipedia.org/wiki/Landsb%C3%B3kasafn_%C3%8Dslands_%E2%80%93_H%C3%A1sk%C3%B3lab%C3%B3kasafn","sameAs":"http://www.wikidata.org/entity/Q627423","mainEntity":"http://www.wikidata.org/entity/Q627423","author":"@type":"Organization","name":"Contributors to Wikimedia projects","publisher":"@type":"Organization","name":"Wikimedia Foundation, Inc.","logo":"@type":"ImageObject","url":"https://www.wikimedia.org/static/images/wmf-hor-googpub.png","datePublished":"2005-11-02T21:44:15Z","dateModified":"2019-03-12T14:19:04Z","image":"https://upload.wikimedia.org/wikipedia/is/9/96/Landsbokasafn_vetur_2012.JPG"(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgBackendResponseTime":123,"wgHostname":"mw1246"););

Popular posts from this blog

Bruad Bilen | Luke uk diar | NawigatsjuunCommonskategorii: BruadCommonskategorii: RunstükenWikiquote: Bruad

What is the offset in a seaplane's hull?

Slayer Innehåll Historia | Stil, komposition och lyrik | Bandets betydelse och framgångar | Sidoprojekt och samarbeten | Kontroverser | Medlemmar | Utmärkelser och nomineringar | Turnéer och festivaler | Diskografi | Referenser | Externa länkar | Navigeringsmenywww.slayer.net”Metal Massacre vol. 1””Metal Massacre vol. 3””Metal Massacre Volume III””Show No Mercy””Haunting the Chapel””Live Undead””Hell Awaits””Reign in Blood””Reign in Blood””Gold & Platinum – Reign in Blood””Golden Gods Awards Winners”originalet”Kerrang! Hall Of Fame””Slayer Looks Back On 37-Year Career In New Video Series: Part Two””South of Heaven””Gold & Platinum – South of Heaven””Seasons in the Abyss””Gold & Platinum - Seasons in the Abyss””Divine Intervention””Divine Intervention - Release group by Slayer””Gold & Platinum - Divine Intervention””Live Intrusion””Undisputed Attitude””Abolish Government/Superficial Love””Release “Slatanic Slaughter: A Tribute to Slayer” by Various Artists””Diabolus in Musica””Soundtrack to the Apocalypse””God Hates Us All””Systematic - Relationships””War at the Warfield””Gold & Platinum - War at the Warfield””Soundtrack to the Apocalypse””Gold & Platinum - Still Reigning””Metallica, Slayer, Iron Mauden Among Winners At Metal Hammer Awards””Eternal Pyre””Eternal Pyre - Slayer release group””Eternal Pyre””Metal Storm Awards 2006””Kerrang! Hall Of Fame””Slayer Wins 'Best Metal' Grammy Award””Slayer Guitarist Jeff Hanneman Dies””Bullet-For My Valentine booed at Metal Hammer Golden Gods Awards””Unholy Aliance””The End Of Slayer?””Slayer: We Could Thrash Out Two More Albums If We're Fast Enough...””'The Unholy Alliance: Chapter III' UK Dates Added”originalet”Megadeth And Slayer To Co-Headline 'Canadian Carnage' Trek”originalet”World Painted Blood””Release “World Painted Blood” by Slayer””Metallica Heading To Cinemas””Slayer, Megadeth To Join Forces For 'European Carnage' Tour - Dec. 18, 2010”originalet”Slayer's Hanneman Contracts Acute Infection; Band To Bring In Guest Guitarist””Cannibal Corpse's Pat O'Brien Will Step In As Slayer's Guest Guitarist”originalet”Slayer’s Jeff Hanneman Dead at 49””Dave Lombardo Says He Made Only $67,000 In 2011 While Touring With Slayer””Slayer: We Do Not Agree With Dave Lombardo's Substance Or Timeline Of Events””Slayer Welcomes Drummer Paul Bostaph Back To The Fold””Slayer Hope to Unveil Never-Before-Heard Jeff Hanneman Material on Next Album””Slayer Debut New Song 'Implode' During Surprise Golden Gods Appearance””Release group Repentless by Slayer””Repentless - Slayer - Credits””Slayer””Metal Storm Awards 2015””Slayer - to release comic book "Repentless #1"””Slayer To Release 'Repentless' 6.66" Vinyl Box Set””BREAKING NEWS: Slayer Announce Farewell Tour””Slayer Recruit Lamb of God, Anthrax, Behemoth + Testament for Final Tour””Slayer lägger ner efter 37 år””Slayer Announces Second North American Leg Of 'Final' Tour””Final World Tour””Slayer Announces Final European Tour With Lamb of God, Anthrax And Obituary””Slayer To Tour Europe With Lamb of God, Anthrax And Obituary””Slayer To Play 'Last French Show Ever' At Next Year's Hellfst””Slayer's Final World Tour Will Extend Into 2019””Death Angel's Rob Cavestany On Slayer's 'Farewell' Tour: 'Some Of Us Could See This Coming'””Testament Has No Plans To Retire Anytime Soon, Says Chuck Billy””Anthrax's Scott Ian On Slayer's 'Farewell' Tour Plans: 'I Was Surprised And I Wasn't Surprised'””Slayer””Slayer's Morbid Schlock””Review/Rock; For Slayer, the Mania Is the Message””Slayer - Biography””Slayer - Reign In Blood”originalet”Dave Lombardo””An exclusive oral history of Slayer”originalet”Exclusive! Interview With Slayer Guitarist Jeff Hanneman”originalet”Thinking Out Loud: Slayer's Kerry King on hair metal, Satan and being polite””Slayer Lyrics””Slayer - Biography””Most influential artists for extreme metal music””Slayer - Reign in Blood””Slayer guitarist Jeff Hanneman dies aged 49””Slatanic Slaughter: A Tribute to Slayer””Gateway to Hell: A Tribute to Slayer””Covered In Blood””Slayer: The Origins of Thrash in San Francisco, CA.””Why They Rule - #6 Slayer”originalet”Guitar World's 100 Greatest Heavy Metal Guitarists Of All Time”originalet”The fans have spoken: Slayer comes out on top in readers' polls”originalet”Tribute to Jeff Hanneman (1964-2013)””Lamb Of God Frontman: We Sound Like A Slayer Rip-Off””BEHEMOTH Frontman Pays Tribute To SLAYER's JEFF HANNEMAN””Slayer, Hatebreed Doing Double Duty On This Year's Ozzfest””System of a Down””Lacuna Coil’s Andrea Ferro Talks Influences, Skateboarding, Band Origins + More””Slayer - Reign in Blood””Into The Lungs of Hell””Slayer rules - en utställning om fans””Slayer and Their Fans Slashed Through a No-Holds-Barred Night at Gas Monkey””Home””Slayer””Gold & Platinum - The Big 4 Live from Sofia, Bulgaria””Exclusive! Interview With Slayer Guitarist Kerry King””2008-02-23: Wiltern, Los Angeles, CA, USA””Slayer's Kerry King To Perform With Megadeth Tonight! - Oct. 21, 2010”originalet”Dave Lombardo - Biography”Slayer Case DismissedArkiveradUltimate Classic Rock: Slayer guitarist Jeff Hanneman dead at 49.”Slayer: "We could never do any thing like Some Kind Of Monster..."””Cannibal Corpse'S Pat O'Brien Will Step In As Slayer'S Guest Guitarist | The Official Slayer Site”originalet”Slayer Wins 'Best Metal' Grammy Award””Slayer Guitarist Jeff Hanneman Dies””Kerrang! Awards 2006 Blog: Kerrang! Hall Of Fame””Kerrang! Awards 2013: Kerrang! Legend”originalet”Metallica, Slayer, Iron Maien Among Winners At Metal Hammer Awards””Metal Hammer Golden Gods Awards””Bullet For My Valentine Booed At Metal Hammer Golden Gods Awards””Metal Storm Awards 2006””Metal Storm Awards 2015””Slayer's Concert History””Slayer - Relationships””Slayer - Releases”Slayers officiella webbplatsSlayer på MusicBrainzOfficiell webbplatsSlayerSlayerr1373445760000 0001 1540 47353068615-5086262726cb13906545x(data)6033143kn20030215029