Skip to main content

Snorri Sturluson Efnisyfirlit Uppruni | Auðsöfnun og völd | Sturlungaöld | Fjölskylda | Verk | Tengt efni | Tenglar | LeiðsagnarvalHeimskringla - Snerpa.isEdda Snorra Sturlusonar -Heimskringla.noHeimskringla eða Sögur Noregs konunga - Heimskringla.noHöfðinginn eftir Sigurð Norðdal; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1966Arfleifð Snorra; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1996Snorri Sturluson átti mestan þátt í að koma Íslandi undir norsku krúnuna; grein í Morgunblaðinu 1966Finnst steinkista Snorra Sturlusonar í Reykholti?; grein í Þjóðviljanum 1962Þegar Snorri Sturluson gisti að Skörum; grein í Morgunblaðinu 1984Snorri Sturluson 1241 - 23. september — 1941"Skaldic Verse-Making In Thirteenth-Century Iceland: The Case of the Sauðafellsferðarvísur", grein í Viking and Medieval Scandinavia 2008b

Íslenskir rithöfundarÍslensk skáldÍslenskir sagnaritararSturlungarSturlungaöldFólk fætt árið 1178Fólk dáið árið 1241


117923. september1241íslenskursagnaritariskáldstjórnmálamaðurSnorra-EdduHeimskringluYnglinga söguEgils sögu SkallagrímssonarReykholtiBorgarfirðiSturlu ÞórðarsonarHvammiDölumGuðnýjar BöðvarsdótturÞórðurSighvaturJón LoftssonOddaSæmundar fróðaSæmundurBersa auðgaBorg á MýrumheimanmundgoðorðSturla ÞórðarsonÍslendinga sögulögsögumaður1218Skúli jarl BárðarsonHákonSkara1219SturlungaaldarSturlaÞorleif ÞórðarsonBæjarbardaga1239ÖrlygsstaðabardagaGissur Þorvaldsson23. september1241Árni beiskurGustav Vigeland194711991233HallberaÁrna óreiðu MagnússyniKolbeini ungaJón murti21. janúar1231Hallveig Ormsdóttir119925. júlíOrmur Jónsson BreiðbælingurBreiðabólstaðFljótshlíðÓrækja SnorrasonGissurar ÞorvaldssonarÞórdísÞorvaldar SnorrasonarVatnsfirði












Snorri Sturluson




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu






Jump to navigation
Jump to search




Málverk Hauks Stefánssonar frá 1930 af Snorra.


Snorri Sturluson (1179 – 23. september, 1241) var íslenskur sagnaritari, skáld og stjórnmálamaður. Hann var mikilvirkur fræðimaður og meðal annars höfundur Snorra-Eddu. Hann var einnig höfundur Heimskringlu er segir sögu norsku konunganna og hefst þar á hinni goðsagnakenndu Ynglinga sögu og rekur síðan sögu konunganna fram til samtíma síns. Einnig er talið líklegt að hann sé höfundur Egils sögu Skallagrímssonar. Snorri bjó lengst af í Reykholti í Borgarfirði.




Efnisyfirlit





  • 1 Uppruni


  • 2 Auðsöfnun og völd


  • 3 Sturlungaöld


  • 4 Fjölskylda


  • 5 Verk


  • 6 Tengt efni


  • 7 Tenglar

    • 7.1 Blaða og tímaritagreinar





Uppruni |


Snorri var yngsti sonur Sturlu Þórðarsonar goða í Hvammi í Dölum og síðari konu hans Guðnýjar Böðvarsdóttur. Albræður hans voru þeir Þórður og Sighvatur og hann átti líka tvær alsystur og fjölda hálfsystkina. Þegar Snorri var þriggja ára bauð Jón Loftsson í Odda, sonarsonur Sæmundar fróða, honum fóstur eftir að hafa verið fenginn til að skera úr erfðadeilu sem Hvamm-Sturla átti í og ólst Snorri því upp á því mikla fræðasetri sem Oddi var á þeim tíma og hlaut þar menntun sína.



Auðsöfnun og völd |


Jón, fóstri Snorra, dó þegar Snorri var 18 ára en hann varð samt áfram í Odda. Sæmundur sonur Jóns og Þórður bróðir Snorra komu því til leiðar nokkru síðar að Snorri giftist Herdísi, dóttur Bersa auðga á Borg á Mýrum og fékk hann með henni mikið fé í heimanmund og goðorð föður hennar þegar hann lést árið 1202. Þau bjuggu fyrst í Odda, frá 1202 á Borg á Mýrum en árið 1206 flutti Snorri í Reykholt en Herdís varð eftir á Borg.


Þegar Snorri komst yfir Reykholt jókst auður hans og áhrif og ekki síður þegar Þórður föðurbróðir hans lét honum eftir hálft goðorð sitt sem hann átti í Borgarfirði, og fleiri goðorð eignaðist hann að fullu eða hluta. Gerðist hann þá höfðingi mikill, því að eigi skorti fé, segir Sturla Þórðarson bróðursonur hans í Íslendinga sögu. Hann var lögsögumaður tvisvar, 1215-1218 og 1222-1231.



Sturlungaöld |




Snorri Sturluson séður með augum listamannsins Christian Krogh. Myndin birtist í útgáfu af Heimskringlu frá 1899.


Sumarið 1218 sigldi Snorri frá Íslandi til Noregs. Skúli jarl Bárðarson var þá valdamesti maður í Noregi, enda var Hákon konungur aðeins 14 ára. Snorri dvaldi hjá Skúla jarli um veturinn og urðu þeir miklir vinir. Var Snorri gerður að hirðmanni konungs og naut mikillar hylli. Einnig heimsótti Snorri Eskil Magnússon og konu hans Kristínu Njálsdóttur í Skara um sumarið 1219. Þau voru bæði skyld konungsættinni og gáfu Snorra góða sýn inn í sögu Svíþjóðar. Þegar Snorri fór heim 1220 gaf Skúli jarl honum skip og margar aðrar gjafir. Höfðu þeir Skúli og Hákon konungur þá farið fram á að Snorri leitaðist við að koma Íslandi undir vald Noregskonungs.


Heimkoma Snorra er vanalega talin marka upphaf Sturlungaaldar en þó virðist hann ekki hafa gert ýkja margt næstu árin til að uppfylla óskir konungsins og jarlsins. Sennilega hefur mikið af starfsorku hans árin eftir heimkomuna farið í að skrifa stórvirkin sem einkum hafa haldið nafni hans á lofti, Eddu og Heimskringlu. Hann var enginn ófriðarmaður þótt áhrifa hans gætti víða á bak við tjöldin í róstum þessa tímabils.


Sturla bróðursonur hans var aftur á móti orðinn fyrirferðarmikill, ekki síst eftir heimkomu sína úr suðurgöngu árið 1235, þar sem hann kom við í Noregi og hafði þar gerst lendur maður Hákonar konungs og tekið að sér að koma Íslandi undir hann, enda þótti konungi Snorra lítið hafa orðið ágengt. Sturla hrakti Snorra frá Reykholti 1236 og árið eftir, þegar Snorri hafði yfirgefið Þorleif Þórðarson frænda sinn rétt fyrir Bæjarbardaga, sigldi hann til Noregs.


Þar höfðu þó aðstæður breyst því Skúli jarl og Hákon konungur voru orðnir ósáttir. Snorri var í Noregi tvo vetur en 1239, eftir að frést hafði af óförum Sturlunga í Örlygsstaðabardaga, vildi Snorri snúa heim en konungur bannaði það. Út vil eg, sagði Snorri, hafði orð konungs að engu og sneri heim.


Stuttu eftir heimför Snorra gerði Skúli jarl misheppnaða uppreisn gegn Hákoni konungi, sem lauk með því að Skúli var veginn. Konungur taldi Snorra landráðamann við sig og fékk Gissur Þorvaldsson það hlutverk að senda Snorra út til Noregs eða drepa hann ella. Sumarið 1241 dó Hallveig kona Snorra og upphófust þá deilur um arf milli Snorra og sona Hallveigar, Klængs og Orms, sem voru jafnframt bróðursynir Gissurar. Klængur og Gissur fóru að Snorra í Reykholti og lét Gissur menn sína vega hann 23. september 1241. Var það Árni beiskur sem hjó Snorra banahöggið.


Stytta af Snorra Sturlusyni eftir norska myndhöggvarann Gustav Vigeland var reist við Reykholtsskóla árið 1947 og er hún afsteypa af styttu sem er í Bergen.



Fjölskylda |


Snorri var tvíkvæntur. Fyrri kona hans (g. 1199) var Herdís Bersadóttir (d. 1233), en eins og áður segir er talið að hún hafi orðið eftir á Borg þegar Snorri fór í Reykholt og skildu þau síðar. Börn þeirra voru Hallbera, sem fyrst giftist Árna óreiðu Magnússyni og síðar Kolbeini unga og skildi við báða menn sína, og Jón murti (eða murtur) Snorrason, sem þótti efnilegur en dó í Noregi 21. janúar 1231 af áverka sem hann fékk í drykkjuróstum.


Seinni kona Snorra var Hallveig Ormsdóttir (um 1199 - 25. júlí 1241). Faðir hennar, Ormur Jónsson Breiðbælingur, var goðorðsmaður á Breiðabólstað í Fljótshlíð og sonur Jóns Loftssonar fóstra Snorra. Hún var ekkja er þau Snorri gerðu með sér helmingafélag 1224 og átti tvo unga syni en börn þeirra Snorra dóu öll ung.


Snorri átti einnig nokkur börn með frillum sínum. Þar á meðal voru Órækja Snorrason, Ingibjörg fyrri kona Gissurar Þorvaldssonar og Þórdís, seinni kona Þorvaldar Snorrasonar í Vatnsfirði.



Verk |


Snorri var sagnfræðingur, skrásetjari goðsagna, rithöfundur og skáld. Ritverk hans eru:



  • Heimskringla er safn konungasagna og er þar fjallað um konunga Noregs frá Hálfdani svarta (um 850) fram til Sverris konungs, sem var við völd á seinustu áratugum 12. aldar. Heimskringla er helsta heimildin um sögu Noregs á þessum öldum og hefur haft mikil áhrif á þjóðarímynd Norðmanna. Talið er að Snorri hafi byrjað á verkinu þegar hann kom heim frá Noregi árið 1220.


  • Snorra-Edda er handbók eða kennslubók í skáldskaparlist og þar er fjallað um norræna goðafræði og goðsagnir og skiptist í Gylfaginningu, Skáldskaparmál og Háttatal. Í upphafi verksins er fjallað um sköpun heimsins og rætur ásatrúar.

  • Ólafs saga helga hin sérstaka er ævisaga Ólafs konungs helga Haraldssonar sem dó 1030.

  • Hugsanlega Egils saga. Þótt engar beinar sannanir séu um að Snorri sé höfundur Egils sögu Skallagrímssonar er margt talið benda til þess.


Tengt efni |


  • Snorralaug í Reykholti

  • Reykholt (Borgarfirði)

  • Fornminjar í Reykholti


Tenglar |



Wikisource

Á Wikiheimild er að finna verk eftir eða um:
Snorri Sturluson






 

Einkennismerki Wikitilvitnunar



Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunni
Snorri Sturluson






 




Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Snorri Sturluson




  • Heimskringla - Snerpa.is


  • Edda Snorra Sturlusonar -Heimskringla.no


  • Heimskringla eða Sögur Noregs konunga - Heimskringla.no


Blaða og tímaritagreinar |



  • Höfðinginn eftir Sigurð Norðdal; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1966


  • Arfleifð Snorra; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1996


  • Snorri Sturluson átti mestan þátt í að koma Íslandi undir norsku krúnuna; grein í Morgunblaðinu 1966


  • Finnst steinkista Snorra Sturlusonar í Reykholti?; grein í Þjóðviljanum 1962


  • Þegar Snorri Sturluson gisti að Skörum; grein í Morgunblaðinu 1984


  • Snorri Sturluson 1241 - 23. september — 1941, Pjetur Sigurðsson háskólaritari Lesbók Morgunblaðsins, 37. tölublað (21.09.1941), Blaðsíða 313

  • "Skaldic Verse-Making In Thirteenth-Century Iceland: The Case of the Sauðafellsferðarvísur", grein í Viking and Medieval Scandinavia 2008









Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Snorri_Sturluson&oldid=1606780“










Leiðsagnarval



























(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.096","walltime":"0.160","ppvisitednodes":"value":260,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":13482,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":212,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":4,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":0,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 87.749 1 -total"," 60.40% 53.001 1 Snið:Lögsögumenn"," 29.45% 25.844 1 Snið:Navbox"," 25.30% 22.202 1 Snið:Wikisource_author"," 7.03% 6.165 1 Snið:Wikivitnun"," 3.99% 3.502 2 Snið:Smella"," 3.82% 3.350 1 Snið:Commons"," 3.04% 2.666 1 Snið:Fd"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.007","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":703404,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1271","timestamp":"20190327182946","ttl":2592000,"transientcontent":false);mw.config.set("wgBackendResponseTime":98,"wgHostname":"mw1321"););

Popular posts from this blog

Bruad Bilen | Luke uk diar | NawigatsjuunCommonskategorii: BruadCommonskategorii: RunstükenWikiquote: Bruad

What is the offset in a seaplane's hull?

Slayer Innehåll Historia | Stil, komposition och lyrik | Bandets betydelse och framgångar | Sidoprojekt och samarbeten | Kontroverser | Medlemmar | Utmärkelser och nomineringar | Turnéer och festivaler | Diskografi | Referenser | Externa länkar | Navigeringsmenywww.slayer.net”Metal Massacre vol. 1””Metal Massacre vol. 3””Metal Massacre Volume III””Show No Mercy””Haunting the Chapel””Live Undead””Hell Awaits””Reign in Blood””Reign in Blood””Gold & Platinum – Reign in Blood””Golden Gods Awards Winners”originalet”Kerrang! Hall Of Fame””Slayer Looks Back On 37-Year Career In New Video Series: Part Two””South of Heaven””Gold & Platinum – South of Heaven””Seasons in the Abyss””Gold & Platinum - Seasons in the Abyss””Divine Intervention””Divine Intervention - Release group by Slayer””Gold & Platinum - Divine Intervention””Live Intrusion””Undisputed Attitude””Abolish Government/Superficial Love””Release “Slatanic Slaughter: A Tribute to Slayer” by Various Artists””Diabolus in Musica””Soundtrack to the Apocalypse””God Hates Us All””Systematic - Relationships””War at the Warfield””Gold & Platinum - War at the Warfield””Soundtrack to the Apocalypse””Gold & Platinum - Still Reigning””Metallica, Slayer, Iron Mauden Among Winners At Metal Hammer Awards””Eternal Pyre””Eternal Pyre - Slayer release group””Eternal Pyre””Metal Storm Awards 2006””Kerrang! Hall Of Fame””Slayer Wins 'Best Metal' Grammy Award””Slayer Guitarist Jeff Hanneman Dies””Bullet-For My Valentine booed at Metal Hammer Golden Gods Awards””Unholy Aliance””The End Of Slayer?””Slayer: We Could Thrash Out Two More Albums If We're Fast Enough...””'The Unholy Alliance: Chapter III' UK Dates Added”originalet”Megadeth And Slayer To Co-Headline 'Canadian Carnage' Trek”originalet”World Painted Blood””Release “World Painted Blood” by Slayer””Metallica Heading To Cinemas””Slayer, Megadeth To Join Forces For 'European Carnage' Tour - Dec. 18, 2010”originalet”Slayer's Hanneman Contracts Acute Infection; Band To Bring In Guest Guitarist””Cannibal Corpse's Pat O'Brien Will Step In As Slayer's Guest Guitarist”originalet”Slayer’s Jeff Hanneman Dead at 49””Dave Lombardo Says He Made Only $67,000 In 2011 While Touring With Slayer””Slayer: We Do Not Agree With Dave Lombardo's Substance Or Timeline Of Events””Slayer Welcomes Drummer Paul Bostaph Back To The Fold””Slayer Hope to Unveil Never-Before-Heard Jeff Hanneman Material on Next Album””Slayer Debut New Song 'Implode' During Surprise Golden Gods Appearance””Release group Repentless by Slayer””Repentless - Slayer - Credits””Slayer””Metal Storm Awards 2015””Slayer - to release comic book "Repentless #1"””Slayer To Release 'Repentless' 6.66" Vinyl Box Set””BREAKING NEWS: Slayer Announce Farewell Tour””Slayer Recruit Lamb of God, Anthrax, Behemoth + Testament for Final Tour””Slayer lägger ner efter 37 år””Slayer Announces Second North American Leg Of 'Final' Tour””Final World Tour””Slayer Announces Final European Tour With Lamb of God, Anthrax And Obituary””Slayer To Tour Europe With Lamb of God, Anthrax And Obituary””Slayer To Play 'Last French Show Ever' At Next Year's Hellfst””Slayer's Final World Tour Will Extend Into 2019””Death Angel's Rob Cavestany On Slayer's 'Farewell' Tour: 'Some Of Us Could See This Coming'””Testament Has No Plans To Retire Anytime Soon, Says Chuck Billy””Anthrax's Scott Ian On Slayer's 'Farewell' Tour Plans: 'I Was Surprised And I Wasn't Surprised'””Slayer””Slayer's Morbid Schlock””Review/Rock; For Slayer, the Mania Is the Message””Slayer - Biography””Slayer - Reign In Blood”originalet”Dave Lombardo””An exclusive oral history of Slayer”originalet”Exclusive! Interview With Slayer Guitarist Jeff Hanneman”originalet”Thinking Out Loud: Slayer's Kerry King on hair metal, Satan and being polite””Slayer Lyrics””Slayer - Biography””Most influential artists for extreme metal music””Slayer - Reign in Blood””Slayer guitarist Jeff Hanneman dies aged 49””Slatanic Slaughter: A Tribute to Slayer””Gateway to Hell: A Tribute to Slayer””Covered In Blood””Slayer: The Origins of Thrash in San Francisco, CA.””Why They Rule - #6 Slayer”originalet”Guitar World's 100 Greatest Heavy Metal Guitarists Of All Time”originalet”The fans have spoken: Slayer comes out on top in readers' polls”originalet”Tribute to Jeff Hanneman (1964-2013)””Lamb Of God Frontman: We Sound Like A Slayer Rip-Off””BEHEMOTH Frontman Pays Tribute To SLAYER's JEFF HANNEMAN””Slayer, Hatebreed Doing Double Duty On This Year's Ozzfest””System of a Down””Lacuna Coil’s Andrea Ferro Talks Influences, Skateboarding, Band Origins + More””Slayer - Reign in Blood””Into The Lungs of Hell””Slayer rules - en utställning om fans””Slayer and Their Fans Slashed Through a No-Holds-Barred Night at Gas Monkey””Home””Slayer””Gold & Platinum - The Big 4 Live from Sofia, Bulgaria””Exclusive! Interview With Slayer Guitarist Kerry King””2008-02-23: Wiltern, Los Angeles, CA, USA””Slayer's Kerry King To Perform With Megadeth Tonight! - Oct. 21, 2010”originalet”Dave Lombardo - Biography”Slayer Case DismissedArkiveradUltimate Classic Rock: Slayer guitarist Jeff Hanneman dead at 49.”Slayer: "We could never do any thing like Some Kind Of Monster..."””Cannibal Corpse'S Pat O'Brien Will Step In As Slayer'S Guest Guitarist | The Official Slayer Site”originalet”Slayer Wins 'Best Metal' Grammy Award””Slayer Guitarist Jeff Hanneman Dies””Kerrang! Awards 2006 Blog: Kerrang! Hall Of Fame””Kerrang! Awards 2013: Kerrang! Legend”originalet”Metallica, Slayer, Iron Maien Among Winners At Metal Hammer Awards””Metal Hammer Golden Gods Awards””Bullet For My Valentine Booed At Metal Hammer Golden Gods Awards””Metal Storm Awards 2006””Metal Storm Awards 2015””Slayer's Concert History””Slayer - Relationships””Slayer - Releases”Slayers officiella webbplatsSlayer på MusicBrainzOfficiell webbplatsSlayerSlayerr1373445760000 0001 1540 47353068615-5086262726cb13906545x(data)6033143kn20030215029