Skip to main content

Þýskaland Efnisyfirlit Lega og landamæri | Orðsifjar | Saga Þýskalands | Landafræði | Stjórnmál | Hagkerfi | Menning | Tilvísanir | Tenglar | Leiðsagnarval„Field Listing :: GDP (official exchange rate)“Rank Order - GDP (purchasing power parity)„Country Comparison :: Exports“„Music market worth US$ 32 billion“Sameinað Þýskaland 1871; grein í Morgunblaðinu 1990Af hverju heitir Þýskaland svo ólíkum nöfnum á frekar líkum tungumálum?bbbbbbb

Þýskaland


þýskaEvrópuRússlandBerlínHins heilaga rómverska keisaradæmisFrankaríkisKarlamagnúsar843Mið-EvrópuÖlpunumNorðursjávarEystrasaltsDanmörkPóllandTékklandAusturríkiSvissFrakklandiLúxemborgBelgíuHollandiAnnokvæðiAusturfrankaríkiVesturfrankaríkidönskuíslenskuHið heilaga rómverska keisaradæmiRómverjarDónáRínarfljótRínarfljótÞýskaþjóðríki1871Verdun-samningsins843FrankaveldiFrakklandiNorður-ÍtalíuNiðurlöndHið heilaga rómverska keisaradæmi1806kaþólsku kirkjunaNorður-krossferðirnarHansasambandiðbronsaldarNorður-Evrópu1800600 f.Kr.járnaldar5. öld1. öld f.Kr.SkandinavíukeltneskaGallíuíranskaslavneskaAustur-EvrópuRómverjafornleifaÁgústusarRómverjarPubliusar Quinctiliusar Varusar9 e.Kr.Arminiusarorrustunni um Teutoburgs-skógRínDónáRómaveldis100 e.Kr.Tacitusar3. öldAlamönnumFrönkumSöxummiðaldaKarlamagnúsar25. desember800843Verdun-sáttmálanum1806EgðuMiðjarðarhafs919102410241125Norður-Ítalíu11381254furstaSlavaHansasambandsins1530mótmælendakaþólsku kirkjunnar30 ára stríðsins16181648Vestfalska friðinumNapóleonFrakklandsíðari heimsstyrjöldAusturríkiVínarfundurinnNapóleonsstyrjaldanna18141815Þýska sambandiðfullveldaByltingarnar í Frakklandi 1848þjóðernisstefnuOtto von BismarckPrússlandi1864stríðiDanmörkuþýska stríðið1866Norður-þýska sambandið1871Þýska keisaradæmisinsVersölumFrakkaFransk-prússneska stríðinuAusturríkiLiechtensteinLúxemborgfyrri heimsstyrjöldlýðræðislegaWeimar-lýðveldi1919Heimskreppanharðir friðarskilmálarvinstrihægri1932Nasistaflokkurinn30. janúar1933Adolf HitlerKanslari ÞýskalandsfrumvarpalræðisvöldNasistarÞriðja ríkið19331945síðari heimsstyrjaldar1. september1939Þýskaland og bandamennEvrópuSovétríkin22. júní1941Bandaríkjunum11. desember8. maí1945sjálfsmorðBerlínhelföringyðingumPóllandBandaríkjamannaBretaFrakkaSovétmannakalda stríðiðAustur-ÞýskalandVestur-ÞýskalandBerlínútlenduBerlínarmúrinn19631989kalda stríðsins3. október1990BerlínarVestur-EvrópuEvrópusambandinuÖryggisráðiSameinuðu þjóðannaflóttamenn og hælisleitendurRuhr-héraðNorðurrín-VestfalíuHarsfjöllSvartaskógAlpafjöllZugspitzeAusturríkisDónáNorðursjóEystrasaltiSvartahafiMecklenborg-VorpommernBæjaralandiísaldarjökulsinsAusturfrísnesku eyjarnarWattenmeerBrimumNorðursjóNorðurfrísnesku eyjannaDanmörkuSyltEystrasaltisambandþýskuþingræðiríkisstjórnforsætisráðherrasambandsráðinuSambandsþing ÞýskalandsSambandsráð ÞýskalandsCDUCSUSPDSambandsstjórn Þýskalandskanslarakanslarinn1949forsetinn1949þjóðaratkvæðagreiðslurWeimar-lýðveldisinshagkerfiEvrópuBandaríkjunumAlþýðulýðveldinu KínaJapankaupmáttdollara2010Alþýðulýðveldið KínabifreiðarvélarefnivindhverflaVolkswagen AGDaimler AGSiemens AGE.ON AGMetro AGDeutsche Post AGDeutsche Telekom AGBASF SEBMW AGThyssenKrupp AGþýskagermanskt tungumálmállýskurlágþýskuEystrasaltfrísneskubæverskuBæjaralandiháþýskulágþýskutyrkneskakúrdískapólskaTyrkirKúrdarPólverjarsorbneskaslavneskt málSaxlandiBrandenborgkaþólsku kirkjunnimótmælendumlútersku kirkjunniundir stjórn kommúnistaMúslímarTyrkjaGyðingarmiðaldaWalther von der VogelweideWolfram von EschenbachJohann Wolfgang von GoetheFriedrich SchillerGrimmsbræður20. öldThomas MannBertolt BrechtHermann HesseHeinrich BöllGünter GrassheimspekingarmiðaldanáttúruvísindatrúarbragðatrúarþekkingarskynsemigeðshræringavísindannasiðfræðinnarlistarinnarGottfried LeibnizrökhyggjumönnunumImmanuel Kantraunhyggjuþýsk hughyggjaJohanns Gottliebs FichteGeorgs Wilhelms Friedrichs HegelFriedrichs Wilhelms Josephs SchellingArthur SchopenhauerKarl MarxFriedrich EngelsþráttarefnishyggjukommúnismaNítjándu aldar heimspekingurinnFriedrich Nietzschefrumspekimeginlandsheimspekinnar20. öldGottlob Fregerökfræðiáttunda áratug19. aldarBertrand Russell1901rökgreiningarheimspekihefðinniMartin HeideggerFrankfurt-skólinnMax HorkheimerTheodor AdornoHerbert MarcuseJürgen Habermasklassískrar tónlistarLudwig van BeethovenJohann Sebastian BachJohannes BrahmsRichard WagnerpopptónlistarmennKraftwerkBoney M.NicoNina HagenScorpionsToten HosenTokio HotelRammsteinPaul van Dyk2006












Þýskaland




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu






Jump to navigation
Jump to search



















































Sambandslýðveldið Þýskaland

Bundesrepublik Deutschland

Fáni Þýskalands

Skjaldamerki Þýskalands

Fáni

Skjaldarmerki


Kjörorð:
Einigkeit und Recht und Freiheit
(Eining, réttlæti og frelsi)

Þjóðsöngur:
Das lied der Deutschen

Staðsetning Þýskalands

Höfuðborg

Berlín

Opinbert tungumál

þýska (danska, lágþýska, sorbíska, rómaní og frísneska eru viðurkennd tungumál)

Stjórnarfar

Lýðveldi, sambandsríki


Forseti

Frank-Walter Steinmeier

Kanslari

Angela Merkel

Stofnun

 - Verdun-samningurinn

843 
 - Heilaga rómverska ríkið

2. febrúar 962 
 - Þýska sambandið

8. júní 1815 
 - Þýska keisaradæmið

18. janúar 1871 
 - Sambandslýðveldið
23. maí 1949 
 - Sameining
3. október 1990 

Evrópusambandsaðild

25. mars 1957

Flatarmál
 - Samtals
 - Vatn (%)

63. sæti
357.340,08 km²
2,18%

Mannfjöldi
 - Samtals (30. september 2014)
 - Þéttleiki byggðar

16. sæti
81,084 milljónir
227/km²

VLF (KMJ)
- Samtals
- á mann
áætl. 2014
3.621 millj. dala (5. sæti)
44.741 dalir (17. sæti)

VÞL (2013)

Straight Line Steady.svg 0.911 (6. sæti)

Gjaldmiðill

evra € ²

Tímabelti

UTC+1 (UTC+2 á sumrin)

Keyrt er
hægri megin

Þjóðarlén

.de

Landsnúmer
+49

Sambandslýðveldið Þýskaland (þýska: Bundesrepublik Deutschland; framburður ) er að flatarmáli sjöunda stærsta ríki Evrópu og spannar rúmlega 357 þúsund km². Það er að sama skapi næst fjölmennasta land Evrópu með 81,1 milljónir íbúa. Aðeins Rússland er fjölmennara. Höfuðborgin er Berlín. Þýskaland var áður fyrr meginhluti Hins heilaga rómverska keisaradæmis sem myndaðist við skiptingu hins mikla Frankaríkis Karlamagnúsar árið 843. Í dag er Þýskaland eitt mesta iðnveldi heims og er efnahagskerfi landsins eitt það stærsta í heimi.




Efnisyfirlit





  • 1 Lega og landamæri


  • 2 Orðsifjar


  • 3 Saga Þýskalands

    • 3.1 Fornöld (100 f.Kr. – 300 e.Kr.)


    • 3.2 Hið heilaga rómverska keisaradæmi (843 – 1806)


    • 3.3 Þýska sambandið og bylting (1814 – 1871)


    • 3.4 Þýska keisaradæmið (1871 – 1918)


    • 3.5 Weimar-lýðveldið (1919 – 1933)


    • 3.6 Þriðja ríkið (1933 – 1945)


    • 3.7 Klofnun (1945 – 1990)


    • 3.8 Sameinað á ný (Frá og með 1990)



  • 4 Landafræði

    • 4.1 Útpunktar


    • 4.2 Borgir


    • 4.3 Fjöll og fjallgarðar


    • 4.4 Fljót og vötn


    • 4.5 Eyjaklasar og eyjar



  • 5 Stjórnmál


  • 6 Hagkerfi


  • 7 Menning

    • 7.1 Tungumál


    • 7.2 Trú


    • 7.3 Bókmenntir


    • 7.4 Heimspeki


    • 7.5 Tónlist



  • 8 Tilvísanir


  • 9 Tenglar




Lega og landamæri |


Þýskaland liggur í Mið-Evrópu og nær frá Ölpunum í suðri til stranda Norðursjávar og Eystrasalts í norðri. Nágrannalönd Þýskalands eru níu talsins: Danmörk í norðri, Pólland og Tékkland í austri, Austurríki og Sviss í suðri ásamt Frakklandi, Lúxemborg, Belgíu og Hollandi í vestri.


Einstök landamæri eftir lengd:



































LandLengd í kmAth.
Austurríki784Í suðaustri
Tékkland646Í austri
Holland577Í vestri
Pólland456Í austri
Frakkland451Í vestri
Sviss334Í suðri
Belgía167Í vestri
Lúxemborg138Í vestri
Danmörk68Í norðri
Alls3.621

Strandlengja landsins er samtals 2.389 km löng (Norðursjór og Eystrasalt til samans).



Orðsifjar |


Hugtakið Þýskt kemur fyrst fram í lok 11. aldar í Annokvæði sem Diutischemi lande, Diutsche lant, Diutischimo lante (þýsk lönd) fyrir Austurfrankaríki þar sem germönsku mælandi þjóðflokkar bjuggu, til aðgreiningar frá Vesturfrankaríki, þar sem talað voru fornfranskar mállýskur. Orðið Deutsch er dregið af fhþ. diutisc af diot sbr. got. þiuda "þjóð", þ.e. "tengd þjóðinni, alþýðunni" og á við um tungumál. Orðið breyttist í tysk á dönsku, þýskt á íslensku, og tedesco á ítölsku.


Þýskaland var lengi vel eingöngu mállandafræðilegt hugtak sem átti við stærra landsvæði en núverandi Þýskaland (Belgía, Holland [sjá enska heitið "dutch"], Sviss, Liechtenstein, Luxemburg, Austurríki, Suðurtírol/Alto Adige á Ítalíu, Elsass í Frakklandi) á meðan ríkið var kallað Hið heilaga rómverska keisaradæmi síðan á 12. öld. Þetta nafn, með nafnbót "þýsks þjóðernis" var notað fram til ársins 1806. Fyrst eftir byltingu 1919 heitir ríkið opinberlega "Þýskaland".


Enska heitið Germany og það rússneska og ítalska Germania er dregið af orðinu Germania en því nafni nefndu Rómverjar landið handan eigin ríkis, norðan við Dóná og austar Rínarfljót. Franska heitið Allemagne (svipað á spænsku, portúgölsku, arabísku, tyrknesku) er dregið af orðinu Alemanni sem er heiti á germönskum þjóðflokki sem bjó við frönsku landamærin við Rínarfljót. Slavneskar þjóðir, Ungverjar og Rúmenar nota nafn af rótinni nemez sem þýðir mállaus, sem sagt talar ekki (okkar) tungumál en slava þýðir upphaflega orð.


Athyglisvert er að nafn fyrir landið (Þýskaland) og heiti þjóðar (Þjóðverjar) eru stundum dregin af mismunandi stofnum, m.a. á íslensku, hins vegar er Þýskaland kallað Þjóðverjaland í gömlum íslenskum bókum. Á ítölsku er talað um Germania en Tedeschi um Þjóðverja.



Saga Þýskalands |


Þýska tungumálið og samkennd meðal Þjóðverja er yfir þúsund ára gömul en sameinað þýskt þjóðríki varð þó ekki til fyrr en með stofnun Þýska keisaradæmisins árið 1871.


Þýskaland rekur uppruna sinn til Verdun-samningsins frá 843 en með honum var Frankaveldi skipt upp í vesturhluta sem varð að Frakklandi nútímans, miðhluta sem tók yfir Norður-Ítalíu, Niðurlönd og fleiri svæði og austurhluta sem myndaði Hið heilaga rómverska keisaradæmi. Það var til í ýmsum myndum allt til 1806 en var þó aldrei meira en mjög laustengt bandalag smá konungsríkja og hafði auk þess fleiri þjóðir en þá þýsku innan sinna vébanda.


Á þessum þúsund árum juku Þjóðverjar mjög við áhrif sín í gegnum kaþólsku kirkjuna, Norður-krossferðirnar og Hansasambandið.



Fornöld (100 f.Kr. – 300 e.Kr.) |





Rómaveldi og landsvæði Germana snemma á 2. öld.


Talið er að rekja megi uppruna germanskra þjóðflokka til bronsaldar Norður-Evrópu (um 1800 – 600 f.Kr.) eða í síðasta lagi til járnaldar Norður-Evrópu (5. öld – 1. öld f.Kr.) Þjóðflokkarnir breiddust út til suðurs, austurs og vesturs frá suðurhluta Skandinavíu og norðurhluta Þýskalands á 1. öld f.Kr. og komust þá í kynni við keltneska þjóðflokka í Gallíu og íranska og slavneska þjóðflokka í Austur-Evrópu. Lítið er vitað um sögu germanskra þjóðflokka á þessum tíma, nema hvað varðar samskipti þeirra við Rómverja auk þekktra fornleifa.[1]


Í valdatíð Ágústusar hófu Rómverjar, undir forystu rómverska herforingjans Publiusar Quinctiliusar Varusar, að ráðast inn á landsvæði Germana. Á þessum tíma kynntust Germanar herstjórnarlist Rómverja. Árið 9 e.Kr. gereyddu Germanar, undir forystu Arminiusar (Hermans), þremur rómverskum herdeildum Varusar í orrustunni um Teutoburgs-skóg. Þar með héldust landsvæði Germana allt að Rín og Dóná utan Rómaveldis. Um 100 e.Kr., þegar rit Tacitusar Germanía var samið, höfðu Germanar komið sér fyrir meðfram Rín og Dóná og réðu nú að mestu leyti yfir því svæði sem Þýskaland nær yfir nú á dögum.


Á 3. öld óx ýmsum vestur-germönskum þjóðflokkum eins og Alamönnum, Frönkum, Söxum og fleirum ásmegin.



Hið heilaga rómverska keisaradæmi (843 – 1806) |


Aðalgrein: Hið heilaga rómverska keisaradæmi

Þýskaland miðalda átti rætur að rekja til veldis Karlamagnúsar, en hann var krýndur keisari 25. desember árið 800. Árið 843 var ríkinu skipt upp í þrjá hluta með Verdun-sáttmálanum. Einn hluti ríkis Karlamagnúsar, Hið heilaga rómverska keisaradæmi, var til í einni mynd eða annarri til ársins 1806. Landsvæði þess náði frá Egðu í norðri til Miðjarðarhafs í suðri.


Á árunum 919 – 1024 voru furstadæmin Lothringen, Saxland, Frankaland, Schwaben, Türingen og Bæjaraland innlimuð. Árin 1024 – 1125 lagði Hið heilaga rómverska keisaradæmi undir sig Norður-Ítalíu og Búrgund en á sama tíma misstu keisarar Hins heilaga rómverska keisaradæmis völd til kirkjunnar. Á árunum 1138 – 1254 jukust áhrif þýskra fursta í suðri og austri á landsvæðum Slava. Bæir í Norður-Þýskalandi uxu og döfnuðu innan Hansasambandsins.


Árið 1530, eftir að umbótatilraunir mótmælenda innan kaþólsku kirkjunnar mistókust, var ný kirkja mótmælenda stofnuð í mörgum af þýsku ríkjunum. Þetta leiddi til innbyrðis deilna Þjóðverja, 30 ára stríðsins sem háð var frá 1618 til 1648 og lauk með Vestfalska friðinum. Eftir þessi átök reyndust Þjóðverjar illa undirbúnir til að takast á við Napóleon sem réðst inn í lönd Þjóðverja og leysti upp Hið heilaga rómverska keisaradæmi. Upp frá því varð Frakkland að erkióvini Þjóðverja fram yfir síðari heimsstyrjöld.



Þýska sambandið og bylting (1814 – 1871) |




Þingið í Frankfurt árið 1848/1849.


Aðalgreinar: Þýska ríkjasambandið og Norður-þýska ríkjasambandið

Mestu varanlegu áhrifin af upplausn Hins heilaga rómverska keisaradæmis voru þau að Austurríki, sem hafði þá lengi verið öflugasta þýska ríkið, fjarlægðist þau norð- og vestlægari. Vínarfundurinn, ráðstefna sem sigurvegarar Napóleonsstyrjaldanna héldu, var settur í nóvember 1814 og stóð til júní 1815. Á ráðstefnunni var ákveðið að stofna Þýska sambandið, laustengt bandalag 39 fullvelda.


Byltingarnar í Frakklandi 1848 höfðu mikil áhrif á sjálfstæðisanda innan Þýska Sambandssins og greina mátti vísi að þjóðernisstefnu. Byltingarandinn leiddi til þess að vald konunganna í ríkjunum 39 dvínaði. Otto von Bismarck var gerður að forsætisráðherra í Prússlandi en hann lagði mikið upp úr hernaðarstyrk ríkisins. Árið 1864 hafði þýska sambandið undir sameiginlegri stjórn Austurríkis og Prússlands betur í stríði gegn Danmörku en upp úr samkeppni þessa tveggja jafningja varð þýska stríðið árið 1866 þar sem Prússland hafði betur. Undir þessum kringumstæðum gat Bismarck stofnað Norður-þýska sambandið og undanskilið Austurríki, fyrrum sterkasta þýska ríkinu, frá aðild.



Þýska keisaradæmið (1871 – 1918) |


Aðalgrein: Þýska keisaraveldið

Árið 1871 var lýst yfir stofnun Þýska keisaradæmisins í Versölum eftir ósigur Frakka í Fransk-prússneska stríðinu. Otto von Bismarck átti stóran þátt stofnuninni. Öll þau ríki sem áður höfðu myndað Þýska sambandið, fyrir utan Austurríki, Liechtenstein og Lúxemborg, voru með í keisaradæminu. Keisaradæmið leið undir lok eftir ósigur Þjóðverja í fyrri heimsstyrjöld og keisaranum var gert að segja af sér.



Weimar-lýðveldið (1919 – 1933) |


Aðalgrein: Weimar-lýðveldið

Hið lýðræðislega Weimar-lýðveldi var stofnað 1919 en Þjóðverjar voru ekki sérlega hrifnir af því. Heimskreppan og harðir friðarskilmálar frá fyrri heimsstyrjöld lögðust þungt á Þýskaland og stjórnmálamenn gátu lítið gert, fylgi andlýðræðislegra stjórnmálaafla á bæði vinstri og hægri væng stjórnmálanna jókst mjög. Í tvennum þingkosningum árið 1932 fékk Nasistaflokkurinn 37,2% og 33,0% atkvæða og þann 30. janúar 1933 var Adolf Hitler skipaður Kanslari Þýskalands. Eitt af fyrstu verkum Hitlers í embætti var að leggja frumvarp fyrir þingið sem færði honum alræðisvöld og nam stjórnarskrá Weimar-lýðveldisins í raun úr gildi.



Þriðja ríkið (1933 – 1945) |


Aðalgrein: Þriðja ríkið

Nasistar kölluðu veldi sitt Þriðja ríkið og það var við lýði í tólf ár, 1933 – 1945. Sú stefna nasista að komast yfir landsvæði í nágrannalöndum og skapa Þjóðverjum þannig „lífsrými“ (Lebensraum) var ein af mörgum ástæðum fyrir upphafi síðari heimsstyrjaldar þann 1. september 1939. Þýskaland og bandamenn þess unnu stóra sigra í fyrri hluta stríðsins og lögðu undir sig stóran hluta Evrópu. Eftir innrásina í Sovétríkin 22. júní 1941 og stríðsyfirlýsingu gegn Bandaríkjunum 11. desember sama ár fór að halla undan fæti fyrir Þjóðverja, þeir gáfust upp 8. maí 1945 eftir að Hitler framdi sjálfsmorð í neðanjarðarbyrgi sínu í Berlín en þá var her Sovétmanna að ná borginni á sitt vald. Ofsóknir á hendur gyðingum og síðar helförin, skipulögð tilraun til að útrýma gyðingum í Evrópu, var alræmt stefnumál nasista á millistríðsárunum og í heimsstyrjöldinni síðari.



Klofnun (1945 – 1990) |


Aðalgreinar: Vestur-Þýskaland og Austur-Þýskaland

Eftir Heimsstyrjöldina síðari misstu Þjóðverjar mikil landsvæði í austri þar sem nú er Pólland og þurftu milljónir Þjóðverja að flytja sig frá þessum svæðum. Því svæði sem eftir var var skipt í hernámssvæði Bandaríkjamanna, Breta, Frakka og Sovétmanna. Þegar kalda stríðið hófst var Þýskalandi skipt í tvennt þar sem hernámssvæði Sovétmanna myndaði Þýska alþýðulýðveldið (Deutsche Demokratische Republik) eða Austur-Þýskaland og hernámssvæði hinna þjóðanna myndaði Sambandslýðveldið Þýskaland (Bundesrepublik Deutschland) eða Vestur-Þýskaland. Berlín hafði einnig verið skipt í fjögur hernámssvæði þrátt fyrir að borgin væri öll innan Austur-Þýskalands. Austur-Berlín var gerð að höfuðborg Austur-Þýskalands en Vestur-Berlín varð að útlendu sem vesturveldin héldu gangandi. Austur-Þjóðverjar höfðu áhyggjur af því að fólkið í austurhlutanum myndi flýja vestur og byrjuðu því að reisa Berlínarmúrinn og var hann fullreistur 1963 og stóð fram á árið 1989.



Sameinað á ný (Frá og með 1990) |


Aðalgrein: Sameining Þýskalands

Í lok kalda stríðsins voru þýsku ríkin sameinuð á ný 3. október 1990 og höfuðborg Þýskalands flutt aftur til Berlínar. Sameinað Þýskaland er fjölmennasta ríki Vestur-Evrópu og iðnaðarveldi á heimsmælikvarða, það er lykilmeðlimur í Evrópusambandinu og sækist nú eftir föstu sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.


Á árinu 2015 komu um milljón flóttamenn og hælisleitendur til Þýskalands.



Landafræði |



Útpunktar |


  • Nyrsti punktur Þýskalands er kallaður Ellenbogen og er við norðurodda eyjarinnar Sylt. Rétt sunnan hans er bærinn List og er það nyrsti bær landsins.

  • Syðsti punktur landsins er við Haldenwanger Eck í bæversku Ölpunum. Þar er bærinn Oberstdorf en hann er syðsti bær landsins.

  • Austasti punktur landsins er við ána Neisse við pólsku landamærin. Austasti byggðarkjarninn er borgin Görlitz.

  • Vestasti punktur landsins er héraðið Selfkant við hollensku landamærin, norðan borgarinnar Aachen.


Borgir |


Í Þýskalandi eru fjórar milljónaborgir. Tíu aðrar eru með meira en hálfa milljón íbúa. Stærsta þéttbýlissvæði Þýskalands er Ruhr-hérað í Norðurrín-Vestfalíu en þar búa allt að ellefu milljón manns á tiltölulega litlu svæði.


Stærstu borgir Þýskalands:


































































RöðBorgÍbúarSambandsland
1Berlín3,4 milljónirBorgríki, höfuðborg Þýskalands
2Hamborg1,7 milljónirBorgríki
3München1,3 milljónirBæjaraland
4Köln1,0 milljónNorðurrín-Vestfalía
5Frankfurt am Main667 þúsundHessen
6Stuttgart591 þúsundBaden-Württemberg
7Dortmund588 þúsundNorðurrín-Vestfalía
8Essen584 þúsundNorðurrín-Vestfalía
9Düsseldorf577 þúsundNorðurrín-Vestfalía
10
Brimar (Bremen)
547 þúsundBorgríki
11Hannover520 þúsundNeðra-Saxland
12Dresden517 þúsundSaxland
13Leipzig515 þúsundSaxland
14Nürnberg503 þúsundBæjaraland
15Duisburg494 þúsundNorðurrín-Vestfalía


Fjöll og fjallgarðar |


Þýskalandi má skipta í þrjá hluta. Nyrst er norðurþýska láglendið (Norddeutsche Tiefebene). Sunnar hækkar landið og skiptist þá í meðalhá fjalllendi (Mittelgebirge) og stóra dali. Af helstu fjalllöndum má nefna Harsfjöll, (Harz) og Svartaskóg (Schwarzwald). Syðst eru svo Alpafjöll, en þau eru hæsti og stærsti fjallgarður Þýskalands. Þar er hæsta fjall landsins, Zugspitze, sem er 2.962 m hátt, og markar landamærin á milli Þýskalands og Austurríkis.



Fljót og vötn |


Í Þýskalandi eru mýmargar ár. Þar eiga stórfljót eins og Dóná upptök sín (í Svartaskógi). Flestar ár renna til norðurs og munda í Norðursjó eða Eystrasalti (eða eru þverár þessara áa). Eina undantekningin er Dóná, sem rennur til austurs og mundar í Svartahafi.


Stærstu ár landsins (listinn miðast við lengd ánna innanlands):
















































































RöðÁKm innanlandsLengd alls í kmRennur íUpptök
1
Rín (Rhein)
8651.320Norðursjó
Sviss
2Weser744Norðursjó
Thüringer-skógur
3
Saxelfur (Elbe)
7271.091Norðursjó
Tékkland
4
Dóná (Donau)
6872.888Svartahaf
Svartiskógur
5Main524Rín
Bæjaraland
6Saale413Saxelfi
Bæjaraland
7Spree382Havel
Saxland
8Ems371Norðursjó
Teutoburger-skógur
9Neckar367Rín
Baden-Württemberg
10Havel325Saxelfi
Mecklenborg-Vorpommern
11Isar265283Dóná
Austurríki
12Aller263Weser
Saxland-Anhalt

Í Þýskalandi er urmull stöðuvatna. Flest þeirra eru í Mecklenborg-Vorpommern og í Bæjaralandi. Stóru vötnin í Bæjaralandi mynduðust öll við bráðnun ísaldarjökulsins.


Stærstu vötn Þýskalands:





































RöðStöðuvatnStærð í km²SambandslandMesta dýpi í m
1Bodensee536
Baden-Württemberg, Bæjaraland
254
2Müritzsee117Mecklenborg-Vorpommern31
3Chiemsee80Bæjaraland72
4Schweriner See61Mecklenborg-Vorpommern52
5Starnberger See56Bæjaraland127
6Ammersee46Bæjaraland81


Eyjaklasar og eyjar |


Mýmargar eyjar eru við þýsku ströndina. Austurfrísnesku eyjarnar eru í Wattenmeer vestur af Brimum í Norðursjó. Meginþorri Norðurfrísnesku eyjanna tilheyra einnig Þýskalandi, en þær nyrstu tilheyra Danmörku. Nyrst þeirra í þýska hlutanum er Sylt, en norðuroddi hennar er jafnframt nyrsti punktur Þýskalands. Stærstu eyjar landsins eru hins vegar í Eystrasalti.


Stærstu eyjar Þýskalands:

























































RöðEyjaStærð í km²ÍbúafjöldiEyjaklasi / haf
1
Ré (Rügen)
92622 þúsund
Eystrasalt
2Usedom37331 þúsund
Eystrasalt
3Fehmarn18514 þúsund
Eystrasalt
4Sylt9927 þúsund
Norðurfrísnesk, Norðursjór
5Föhr829 þúsund
Norðurfrísnesk, Norðursjór
6Nordstrand482.300
Norðurfrísnesk, Norðursjór
7Pellworm371.100
Norðurfrísnesk, Norðursjór
8Poel362.900
Eystrasalt
9Borkum315.500
Austurfrísnesk, Norðursjór
10Norderney266.200
Austurfrísnesk, Norðursjór


Stjórnmál |


Þýskaland er samband 16 sambandsríkja sem kallast á þýsku Länder (eintala: Land) eða óformlega Bundesländer (eintala: Bundesland). Sambandsríkin hafa mikið sjálfstæði og er öllum stjórnað skv. þingræði af þingkosinni ríkisstjórn (Landesregierung, Staatsregierung eða Senat) undir forsæti forsætisráðherra (Ministerpräsident, Regierender Bürgermeister eða Präsident des Senats). Þing Länder (Landtag, Abgeordnetenhaus eða Bürgerschaft) eru kosin til fimm ára í öllum ríkjum nema Brímum. Kjörtímabil hafa verið lengd úr fjórum í fimm ár á árunum kringum þúsaldamót. Stjórn hvers sambandsríkis sendir 3-6 fulltrúa eftir íbúafjölda á sambandsráðinu (Bundesrat), en það er fulltrúaráð sem er sambærilegt öldungadeildum sumra þjóðþinga.





Karte Bundesrepublik Deutschland.svg


Coat of arms of Lower Saxony.svgNeðra-Saxland


Bremen Wappen(Mittel).svgBrimar


DEU Hamburg COA.svg Hamborg


Coat of arms of Mecklenburg-Western Pomerania (great).svgMecklenburg-
Vorpommern



Wappen Sachsen-Anhalt.svgSaxland-
Anhalt



Coat of arms of Saxony.svgSaxland


Brandenburg Wappen.svgBrandenborg


Coat of arms of Berlin.svgBerlín


Coat of arms of Thuringia.svgÞýringaland


Coat of arms of Hesse.svgHessen


Coat of arms of North Rhine-Westfalia.svgNorðurrín-
Vestfalía



Coat of arms of Rhineland-Palatinate.svgRínarland-
Pfalz



Bayern Wappen.svgBæjaraland


Coat of arms of Baden-Württemberg (lesser).svgBaden-
Württemberg



Wappen des Saarlands.svgSaarland


Coat of arms of Schleswig-Holstein.svgSlésvík-
Holtsetaland












































































SambandslandStærð í km²ÍbúarHöfuðborg
Baden-Württemberg35.75110,7 milljónir
Stuttgart

Bæjaraland (Bayern)
70.55012,4 milljónir
München

Berlín (Berlin)
8913,9 milljónirborgríki

Brandenborg (Brandenburg)
29.4772,5 milljónir
Potsdam

Brimar (Bremen)
404663 þúsborgríki

Hamborg (Hamburg)
7551,7 milljónirborgríki
Hessen21.1146,1 milljón
Wiesbaden

Mecklenborg-Vorpommern (Mecklenburg-Vorpommern)
23.2741,7 milljónir
Schwerin

Neðra-Saxland (Niedersachsen)
47.6188 milljónir
Hannover

Norðurrín-Vestfalía (Nordrhein-Westfalen)
34.04218 milljónir
Düsseldorf

Rínarland-Pfalz (Rheinland-Pfalz)
19.8474,1 milljón
Mainz
Saarland2.5681 milljón
Saarbrücken

Saxland (Sachsen)
18.4144,3 milljónir
Dresden

Saxland-Anhalt (Sachsen-Anhalt)
20.4452,5 milljónir
Magdeburg

Slésvík-Holtsetaland (Schleswig-Holstein)
15.7632,8 milljónir
Kiel

Þýringaland (Thüringen)
16.1722,3 milljónir
Erfurt
Samtals (16)357.09382,2 milljónir



Angela Merkel er fyrst kvenna til að gegna embætti kanslara í Þýskalandi



Sambandsþing Þýskalands (Bundestag) er kosin til fjögurra ára í senn. Það og Sambandsráð Þýskalands fara saman með þau mál sem stjórnarskrá Sambandslýðveldisins Þýskalands hefur ekki falið þingum og ríkisstjórnum sambandsríkjanna.


Við þingkosningar eru allir ríkisborgarar eldri en 18 ára kosningabærir og með tvö atkvæði. Svokallað fyrsta atkvæði (Erststimme) gildir í einmenningskjördæmum sem skipa 299 sæti á þinginu. Þar gildir einfaldur meirihluti. Samkvæmt öðru atkvæðinu (Zweitstimme) reiknast heildar sætaskipting í hverju sambandsríki fyrir sig og gefur a.m.k. önnur 299 sæti á Sambandsþinginu. Flokkur eða listi sendir einungis mann á þing ef hann nær 5% allra gildra atkvæða á landslista, nema hann hafi náð a.m.k. 4 einmenningskjördæmum, þá umreiknast hans atkvæðafjöldi í sæti þó að hann hafi annars ekki náð 5%. Heildarfjöldi sæta sveiflast til af því að reglulega kemur fyrir að flokkur (aðallega CDU og CSU en líka SPD) nái fleiri sætum í einmenningskjördæmum á stökum landslista en annað atkvæðið gefur til kynna. Fær þá flokkurinn að halda öllum þessum einmenningssætum (svokölluðum umframsætum), en síðan 2013 fá hinir flokkar jöfnunarsæti af landslista. Þannig voru þingsæti eftir kosningum í september 2013 ekki 598 að tali heldur 631, þ.e. 33 umfram- og jöfnunarsæti voru á þingi aukalega. Ef þingmaður af lista með umfram- eða jöfnunarsæti hverfur af þingi á kjörtímabili kemur enginn nýr af listanum. Þannig getur fjöldi þingmanna minnkað á kjörtímabili.


Sambandsstjórn Þýskalands (Bundesregierung) starfar ekki í umboði forsetans eins og á Íslandi, heldur uns þingið kýs nýjan kanslara, venjulega í kjölfar sambandsþingkosninga, en það getur líka gerst á miðju kjörtímabili. kanslarinn ( Bundeskanzler (kk), Bundeskanzlerin (kvk)) er æðsti stjórnandi Bundesregierung. Það er á hans valdsviði að leggja pólitískar útlínur ríkisstjórnarinnar og hann tilnefnir ráðherra og aðstoðarmenn ráðherra sem forsetinn skipar svo í embætti. Samt sem áður tekur ríkistjórnin allar ákvarðanir með atkvæðagreiðslu á ríkisstjórnarfundum.


Ákæra gegn kanslara eða ráðherrum sbr. landsdómi á Íslandi er ekki leyfileg, hins vegar getur þing einfaldlega kosið nýjan kanslara eftir þriggja daga umhugsunarfrest eftir að tillaga hefur verið lögð fram.


Kanslarar Þýskalands frá stofnun sambandsríkisins 1949:





























KanslariEmbættistímiStjórnmálaflokkur
Konrad Adenauer
1949-1963

CDU
Ludwig Erhard
1963-1966

CDU
Kurt Georg Kiesinger
1966-1969

CDU
Willy Brandt
1969-1974

SPD
Helmut Schmidt
1974-1982

SPD
Helmut Kohl
1982-1998

CDU
Gerhard Schröder
1998-2005

SPD
Angela MerkelFrá 2005

CDU

Þjóðhöfðingi Þýskalands er forsetinn (Bundespräsident). Hann er kosinn til fimm ára á sameiginlegum kjörfundi þar sem allir þingmenn Sambandsþingsins og jafnmargir sem kjörnir voru af þingum sambandsríkjanna eru kosningabærir. Einungis eitt endurkjör er leyfilegt í senn. Staða hans skv. stjórnarskrá er ekki mjög sterk en þetta var gert viljandi eftir slæma reynslu Þýskalands af einræði Hitlers. Forsetinn skipar þó formlega alla embættismenn sambandslýðveldisins og veitir þeim lausn. Hann tilnefnir kanslaraefni við þingið og leysir þingið upp undir þeim kringumstæðum sem stjórnaskráin skilgreinir. Hann staðfestir öll lög til birtingar með undirskrift sinni. Forseti Þýskalands gerir samninga við erlend ríki en þeir þurfa alltaf á staðfestingu viðkomandi þings (sambands- eða sambandsríkisþing) að halda. Svigrúm hans til eigin ákvarðanatöku er því takmarkað undir venjulegum kringumstæðum. Í neyðartilfellum getur mikilvægi hans aukist gríðarlega.


Tvisvar hefur forseti Horst Köhler dregið í efa að lög samræmist stjórnarskrá og því synjaði hann þeim undirskrift. Engin regla er um þannig stöðu. En þingið reyndi að bregðast við athugasemdum forsetans. Réttur forsetans til að synja lögum undirskrift er umdeildur. Önnur ákvörðun hans var kærð til Stjórnlagadómstólsins en dæmd réttmæt. Hægt er að kæra forsetann sjálfan til stjórnarskrárdómstólsins ef rökstuddur grunur liggur fyrir að hann hafi viljandi brotið á stjórnarskránni. Ákvörðun um hvort ákært verður og hver fari með ákæru er tekin á þingi.




Forsetar Þýskalands frá stofnun sambandsríkisins 1949:









































ForsetiEmbættistímiStjórnmálaflokkur
Theodor Heuss
1949-1959

FDP
Heinrich Lübke
1959-1969

CDU
Gustav Heinemann
1969-1974

SPD
Walter Scheel
1974-1979

FDP
Karl Carstens
1979-1984

CDU
Richard von Weizsäcker
1984-1994

CDU
Roman Herzog
1994-1999

CDU
Johannes Rau
1999-2004

SPD
Horst Köhler
2004-2010

CDU
Christian Wulff
2010-2012

CDU
Joachim Gauck
2012-2017
óflokksbundinn
Frank-Walter SteinmeierFrá 2017

SPD

Ekki er gert ráð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur (Volksabstimmung) í stjórnarskrá Sambandslýðveldisins Þýskalands nema við mjög afmörkuð tilefni: breytingar á skipulagi landsins (tilfærsla landamæra eða sameining/skipting sambandsríkja) og upptöku algjörlega nýrrar stjórnarskrár. Þetta var sett í stjórnarskrána eftir slæma reynslu á tímum Weimar-lýðveldisins milli stríðsára. Kröfur um að setja þjóðaratkvæðagreiðslur inn í stjórnarskrána hafa þó verið gerðar reglulega.


Í dag gera hins vegar allar stjórnarskrár sambandsríkjanna ráð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum og e.t.v. lagafrumvörp utan þings, ef nægilega margir sýna stuðning við atkvæðagreiðslu í formlegri undirskriftasöfnun (Volksbegehren, ["Þjóðgirnd"] þ.e. krafa þjóðarinnar). Sama gildir um atkvæðagreiðslur á sveitastjórnarstigi.



Hagkerfi |





Frankfurt am Main er miðpunktur þýskra fjármála en þar hefur einnig Seðlabanki Evrópusambandsins aðsetur.


Aðalgrein: Hagkerfi Þýskalands

Þýskaland er stærsta hagkerfi í Evrópu og fjórða stærsta hagkerfi heims á eftir Bandaríkjunum, Alþýðulýðveldinu Kína og Japan. [2] Það er sjötta öflugasta hagkerfi heims miðað við kaupmátt.[3] Útflutningsvörur eru ein meginstoð þýska hagkerfisins. Þýskaland er annað mesta útflutningsland heims en útflutningtekjur þess námu 1.337 milljörðum dollara árið 2010.[4] Einungis Alþýðulýðveldið Kína flytur meira út heldur en Þýskaland. Stærstur hluti útflutningsvara eru bifreiðar, vélar og efni. Þýskaland er stærsti framleiðandi vindhverfla í heimi.


Stærstu fyrirtæki landsins eru Volkswagen AG, Daimler AG, Siemens AG, E.ON AG, Metro AG, Deutsche Post AG, Deutsche Telekom AG, BASF SE, BMW AG og ThyssenKrupp AG.



Menning |


Aðalgrein: Þýsk menning


Tungumál |


Aðalgrein: Þýska

Opinbert tungumál er þýska en hún er germanskt tungumál. Hins vegar eru til hinar og þessar mállýskur af þýsku, sumar jaðra við að vera eigið mál. Það á við um lágþýsku (þ. plattdeutsch) sem töluð er nyrst við Eystrasalt, frísnesku, sem töluð á frísnesku eyjunum, og bæversku, sem töluð er í Bæjaralandi. Venjulega er þó talað um háþýsku og lágþýsku. Auk þýsku eru töluð nokkur önnur mál í Þýskalandi, aðallega af minnihlutahópum. Þeirra helst eru tyrkneska, kúrdíska og pólska enda Tyrkir, Kúrdar og Pólverjar fjölmennir í landinu. Austast er töluð sorbneska en það er gamalt slavneskt mál sem haldist hefur allt frá tímum þýsks landnáms austast í Saxlandi og Brandenborg.



Trú |


Aðalgrein: Trúarbrögð í Þýskalandi

Segja má að í landinu séu tvær stórar kirkjur, nær jafnstórar, sem skipta þjóðinni í tvennt. 31,7% íbúanna tilheyra kaþólsku kirkjunni, en hún er mest í vestur- og suðurhluta landsins. 31,3% íbúanna tilheyra mótmælendum, mest lútersku kirkjunni en mótmælendur eru aðallega í norðurhluta landsins. 31% íbúanna tilheyra engri kirkju, aðallega í austurhluta landsins, enda var sá hluti undir stjórn kommúnista í hartnær 40 ár. Múslímar eru 4% þjóðarinnar og vegur þar mest sá mikli fjöldi Tyrkja sem í landinu búa. Gyðingar eru um það bil 106 þúsund talsins en það gerir aðeins tæplega 0,13%.



Bókmenntir |


Aðalgrein: Þýskar bókmenntir

Rekja má þýskar bókmenntir aftur til miðalda og til verka rithöfunda á borð við Walther von der Vogelweide og Wolfram von Eschenbach. Fjölmargir þýskir rithöfundar og skáld hafa notið mikilla vinsælda, þar á meðal Johann Wolfgang von Goethe og Friedrich Schiller. Ævintýrin og þjóðsögurnar sem kenndar eru við Grimmsbræður hafa gert þýskar þjóðsögur þekktar víða.
Meðal áhrifamikilla rithöfunda á 20. öld má nefna Thomas Mann, Bertolt Brecht, Hermann Hesse, Heinrich Böll og Günter Grass.













Johann Wolfgang v. Goethe
(1749 – 1832)

Friedrich Schiller
(1759 – 1805)

Grimmsbræður
(1785 – 1863)

Thomas Mann
(1875 – 1955)

Hermann Hesse
(1877 – 1962)
Johann Heinrich Wilhelm Tischbein - Goethe in der roemischen Campagna.jpgGerhard von Kügelgen 001.jpgGrimm1.jpgThomas Mann 1929.jpg
Hermann Hesse 1927 Photo Gret Widmann.jpg


Heimspeki |


Aðalgrein: Þýsk heimspeki



Immanuel Kant (1724 – 1804)


Þýskir (og aðrir þýskumælandi) heimspekingar hafa haft gríðarleg áhrif á þróun heimspekinnar frá lokum miðalda. Tilkoma nútíma náttúruvísinda og hnignun trúarbragða hafa getið af sér ýmsar spurningar, sem eru fyrirferðamiklar í þýskri heimspeki, meðal annars um sambandið milli trúar og þekkingar, skynsemi og geðshræringa og heimsmynda vísindanna, siðfræðinnar og listarinnar.


Gottfried Leibniz var einn af mikilvægustu rökhyggjumönnunum. Immanuel Kant reyndi að sætta rökhyggju og raunhyggju en með heimspeki hans verður einnig til þýsk hughyggja. Hún lifði áfram í kenningum Johanns Gottliebs Fichte, Georgs Wilhelms Friedrichs Hegel og Friedrichs Wilhelms Josephs Schelling og einnig hjá Arthur Schopenhauer. Karl Marx og Friedrich Engels voru frumkvöðlar þráttarefnishyggju, undir áhrifum frá Hegel, og kommúnisma. Nítjándu aldar heimspekingurinn Friedrich Nietzsche nálgaðist heimspekilegar spurningar frá öðru sjónarhorni, afneitaði frumspeki forvera sinna og var forveri meginlandsheimspekinnar, sem varð til á 20. öld. Stærðfræðingurinn Gottlob Frege fann upp nútíma rökfræði á áttunda áratug 19. aldar en hlaut litla eftirtekt fyrr en breski heimspekingurinn Bertrand Russell uppgötvaði mótsögn í kerfinu árið 1901. Saman marka þeir upphafið að rökgreiningarheimspekihefðinni sem naut mikilla vinsælda á 20. öld og hafði ómæld áhrif. Innan meginlandsheimspekinnar á 20. öld voru hins vegar áhrifamiklir þeir Martin Heidegger og Frankfurt-skólinn með þá Max Horkheimer, Theodor Adorno, Herbert Marcuse og Jürgen Habermas í broddi fylkingar.



Tónlist |


Aðalgrein: Þýsk tónlist

Þjóðverjar státa af ríkri tónlistarsögu og hafa meðal annars alið nokkur af þekktustu tónskáldum klassískrar tónlistar, svo sem Ludwig van Beethoven, Johann Sebastian Bach, Johannes Brahms og Richard Wagner. En ýmsir áhrifamiklir popptónlistarmenn hafa einnig komið frá Þýskalandi, þar á meðal Kraftwerk, Boney M., Nico, Nina Hagen, Scorpions, Toten Hosen, Tokio Hotel, Rammstein og Paul van Dyk.[5] Árið 2006 var Þýskaland fimmta stærsta markaðssvæði tónlistar í heimi.










J.S. Bach
Toccata und Fuge

L.v. Beethoven
Symphonie 5 c-moll

R. Wagner
Die Walküre


Tilvísanir |




  1. Jill N. Claster: Medieval Experience: 300-1400 (New York: NYU Press, 1982): 35.


  2. „Field Listing :: GDP (official exchange rate)“, skoðað þann 26. júní 2011.


  3. Rank Order - GDP (purchasing power parity) CIA Factbook 2005. Skoðað 19. febrúar 2006.


  4. „Country Comparison :: Exports“, skoðað þann 26. júní 2011.


  5. „Music market worth US$ 32 billion“ á P2pnet.net 7. apríl 2004. (Skoðað 7. desember 2006).




Tenglar |





 




Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Þýskalandi




  • Sameinað Þýskaland 1871; grein í Morgunblaðinu 1990


  • Vísindavefurinn: „Af hverju heitir Þýskaland svo ólíkum nöfnum á frekar líkum tungumálum?“















Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Þýskaland&oldid=1629927“










Leiðsagnarval



























(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.492","walltime":"0.593","ppvisitednodes":"value":2430,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":63003,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":5131,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":6,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":2221,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 181.898 1 -total"," 21.69% 39.452 1 Snið:Reflist"," 18.34% 33.368 7 Snið:Navbox"," 11.91% 21.659 1 Snið:Land"," 8.76% 15.942 1 Snið:Sambandslönd_Þýskalands"," 5.97% 10.855 1 Snið:Þýsku_sambandslöndin"," 4.64% 8.449 14 Snið:Aðalgrein"," 4.58% 8.334 2 Snið:Vefheimild"," 4.31% 7.838 1 Snið:Evrópa"," 4.12% 7.486 1 Snið:G-20"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.027","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":1250897,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1334","timestamp":"20190417144242","ttl":2592000,"transientcontent":false););"@context":"https://schema.org","@type":"Article","name":"u00deu00fdskaland","url":"https://is.wikipedia.org/wiki/%C3%9E%C3%BDskaland","sameAs":"http://www.wikidata.org/entity/Q183","mainEntity":"http://www.wikidata.org/entity/Q183","author":"@type":"Organization","name":"Contributors to Wikimedia projects","publisher":"@type":"Organization","name":"Wikimedia Foundation, Inc.","logo":"@type":"ImageObject","url":"https://www.wikimedia.org/static/images/wmf-hor-googpub.png","datePublished":"2004-07-06T16:26:31Z","dateModified":"2019-03-26T13:38:35Z","image":"https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/2/26/EU-Germany.svg"(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgBackendResponseTime":260,"wgHostname":"mw1250"););

Popular posts from this blog

He _____ here since 1970 . Answer needed [closed]What does “since he was so high” mean?Meaning of “catch birds for”?How do I ensure “since” takes the meaning I want?“Who cares here” meaningWhat does “right round toward” mean?the time tense (had now been detected)What does the phrase “ring around the roses” mean here?Correct usage of “visited upon”Meaning of “foiled rail sabotage bid”It was the third time I had gone to Rome or It is the third time I had been to Rome

Bunad

Færeyskur hestur Heimild | Tengill | Tilvísanir | LeiðsagnarvalRossið - síða um færeyska hrossið á færeyskuGott ár hjá færeyska hestinum