Skip to main content

Freiburg (Þýskaland) Efnisyfirlit Lega | Skjaldarmerki | Orðsifjar | Saga Freiburg | Íþróttir | Vinabæir | Frægustu börn borgarinnar | Byggingar og kennileiti | Heimildir | Leiðsagnarvalwww.freiburg.deb

Freiburg (Þýskaland)Borgir í ÞýskalandiBaden-Württemberg


Baden-WürttembergÞýskalandiSvartaskógRínarfljótFrakklandiBaselSvissSkjaldarmerkiheilags Georgsverndardýrlingur132710911120Hinriks Vþýska ríkisinssilfurFrúarkirkjan121812991368Napoleon18051386Sempach1415SigismundKonstanzBodenvatnkaþólsku kirkjunnarpáfarJóhannes páfi XXIIIMannheimMaximilian I149815131524siðaskiptumBaselStrassborgErasmus frá Rotterdam30 ára stríðinuGustav Adolf1631jólum1632sænskur1634Spánverjapáskum1638Richelieu kardinála1644Loðvík XIVAlsace1678NijmegenHollandiLeopold I16819 ára stríðiðRijswjik16971701-171317141744Loðvík XVBæjaralandi1793stórorrustunni við AusterlitzVínarborgRússlandiAlexander IFriðrik VilhjálmurFrans IVínarfundinum1815Heimstyrjöldin fyrri1923Ludwig Quiddefriðarverðlaun Nóbelsheimstyrjöldinni síðari1940flugvélardesember1944Bretarapríl1945Charles de Gaulleoktóber1952StuttgartSC FreiburgBundeligunni1995Tour de France20002005WiwilíNíkaragvaAachenÁgsborgBielefeldBochumBonnBrúnsvíkChemnitzDuisburgErfurtFreiburgGelsenkirchenHalle an der SaaleKarlsruheKílKrefeldLübeckMagdeburgMannheimMünsterMönchengladbachOberhausenRostockWiesbadenWuppertal












Freiburg (Þýskaland)




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

(Endurbeint frá Freiburg im Breisgau)





Jump to navigation
Jump to search


















Skjaldarmerki Freiburg
Lega Freiburg í Þýskalandi

Flagge von Bayern


Landeswappen Bayern

Upplýsingar
Sambandsland:Baden-Württemberg
Flatarmál:153,07 km²
Mannfjöldi:218.043 (31. des 2012)
Þéttleiki byggðar:1.424/km²
Hæð yfir sjávarmáli:278 m
Vefsíða:
www.freiburg.de

Freiburg eða Freiburg im Breisgau er fjórða stærsta borgin í sambandslandinu Baden-Württemberg í Þýskalandi með 218 þúsund íbúa. Hún er syðsta stórborgin í Þýskalandi og er þekkt fyrir ýmsar gamlar byggingar í miðborginni. Freiburg hefur oftar en flestar þýskar stórborgir verið hertekin í stríði.




Efnisyfirlit





  • 1 Lega


  • 2 Skjaldarmerki


  • 3 Orðsifjar


  • 4 Saga Freiburg

    • 4.1 Upphaf


    • 4.2 Habsborg


    • 4.3 30 ára stríðið


    • 4.4 Undir franskri stjórn


    • 4.5 Nýrri tímar



  • 5 Íþróttir


  • 6 Vinabæir


  • 7 Frægustu börn borgarinnar


  • 8 Byggingar og kennileiti


  • 9 Heimildir




Lega |


Freiburg liggur við Svartaskóg (Schwarzwald) í suðvesturhorni Þýskalands, rétt austan við Rínarfljót og landamærin að Frakklandi, svo og rétt norðan við svissnesku landamærin. Næsta stórborgin er Basel í Sviss um 35 km til suðurs.



Skjaldarmerki |


Skjaldarmerki borgarinnar er Georgskrossinn, kross heilags Georgs, en hann er elsti verndardýrlingur borgarinnar. Þetta er rauður kross á hvítum grunni. Enski fáninn er nákvæmlega eins, nema hvað fáninn er öðruvísi í laginu. Þetta merki kom fyrst fram í Freiburg 1327.



Orðsifjar |


Freiburg merkir fríborg. Hér er þó ekki um það að ræða að borgin hafi verið fríborg í þýska ríkinu, eins og títt var um ýmsar aðrar borgir. Opinbert heiti borgarinnar er Freiburg im Breisgau, til aðgreiningar á öðrum borgum með sama heiti.



Saga Freiburg |




Konrad greifi af Zähringer ætt veitir Freiburg borgarréttindi 1120



Upphaf |


Upphaf Freiburg má rekja til ársins 1091 en þá reisti sér Bertold II hertogi Zähringer-ættarinnar sér kastalavirkið Castrum de Friburch á hæð einni við jaðar Svartaskógs. Þjónustufólk hans og iðnaðarmenn bjuggu fyrir utan kastalann og mynduðu bæ sem seinna varð að borginni Freiburg. Synir Bertolds veittu Freiburg borgarréttindi 1120 við samþykki Hinriks V keisara þýska ríkisins. Borgin óx og dafnaði vel er silfur fannst í vesturhlíðum Svartaskógs. Á þeim tíma var gamla Frúarkirkjan reist en margir líta á hana sem fegurstu kirkju heims. Árið 1218 dó Zähringer-ættin út. Við það erfðu greifarnir frá Urach borgina, sem þaðan í frá kenndu þeir sig við Freiburg. Greifarnir urðu afar óvinsælir meðal borgarbúa. Á næstu 124 árum áttu þeir í stöðugum erjum við þá. Árið 1299 neituðu borgarbúar að greiða greifanum skatt, sem við svo búið sat um borgina og skaut á hana með slöngvutækjum. Árið 1368 tóku borgarbúar sig saman og keyptu sig fría frá greifadæminu fyrir 20 þús silfurmörk og gengu sjálfviljugir undir verndarvæng Habsborgar. Þannig stóðu málefni borgarinnar allt þar til Napoleon innlimaði borgina í Baden 1805.



Habsborg |




Elsta ráðhús Freiburg. Þar var ríkisþingið haldið 1498.


Habsborgarar kröfðust þess að borgarbúar greiddu í herkostnað, enda stóð Habsborg í erjum víða. Ekki síst í Sviss, en þar höfðu landsmenn svarið eið og sagt sig úr tengslum við Habsborg. Árið 1386 var safnað liði og barist við bæinn Sempach í Sviss. Allir heldri borgarar Freiburg börðust þar með Habsborgurum, sem biðu þar mikinn ósigur. Leopold III hertogi Habsborgara féll í bardaganum, en einnig nær allir þátttakendur frá Freiburg, sem við það missti nær gjörvalla yfirstétt sína. Við svo búið tók handverksstéttin völdin í borginni. 1415 hélt Sigismund keisari kirkjuþingið mikla í Konstanz við Bodenvatn til að jafna klofning kaþólsku kirkjunnar. Þrír páfar ríktu samtímis og voru þeir allir settir af. Jóhannes páfi XXIII neitaði að láta setja sig af og flúði til Freiburg. Því lét keisari bannfæra borgina í heild sinni, ásamt öllum íbúunum. Jóhannes var handtekinn og settur í varðhald í Mannheim. Einn merkasti atburðurinn í sögu Freiburg er ríkisþingið sem Maximilian I keisari hélt þar í borg 1498. Á þinginu var reynt að finna lausn á ‘svissneska vandamálinu.’ Hinir eiðsvörnu neituðu hins vegar alfarið að semja við ríkið og kusu að halda sjálfstæði sínu. Árið 1513 kom til bændauppreisnar í nærsveitum. Það tókst að stöðva fárið áður en uppreisnin breiddist út. En 1524 gerðu bændur aðra og meiri uppreisn í siðaskiptafárinu, er 18 þúsund bændur gripu til vopna á svæðinu. Þeir náðu að hertaka Freiburg og komu siðaskiptum á með valdi. Þegar lokst tókst að brjóta bændauppreisnina miklu á bak aftur lágu um 100 þúsund bændur í valnum víða í Þýskalandi. Freiburg snerist aftur til kaþólskrar trúar en aðrar borgir í nágrenninu, svo sem Basel og Strassborg, héldust lúterskar. Þegar siðaskiptafárið náði hámarki í Basel flúði húmanistinn Erasmus frá Rotterdam þaðan og settist að í Freiburg.



30 ára stríðið |


Í 30 ára stríðinu slapp héraðið og borgin við þátttöku lengi vel. En þegar Gustav Adolf Svíakonungur sigraði keisaraherinn 1631, stóð honum allt Suður-Þýskaland opið. Á jólum 1632 birtist sænskur her undir stjórn Horn hershöfðingja við borgardyrnar. Viku seinna ákváðu borgarbúar að berjast ekki og opnuðu hliðin. Svíar hernámu borgina og héldu henni með stuttu hléi til 1634, er þeir töpuðu í orrustu við sameinaðan her keisarans og Spánverja. Á páskum 1638 var aftur ráðist á borgina. Að þessu sinni sat Bernhard frá Sachsen-Weimar um borgina, en hann var á mála Frakka (Richelieu kardinála). Eftir 11 daga umsátur gáfust borgarbúar aftur upp og hertók Bernhard borgina. Hann dó hins vegar óvænt ári síðar og við það fóru allir landvinningar hans til Frakklands. 1644 kom keisaraherinn til Freiburg og stóð andspænis Frökkum. Þá dró til stórorrustu á völlunum fyrir framan borgina. Orrustan stóð yfir í þrjá daga við gríðarlegt mannfall beggja aðila. Hvorugur gat lýst yfir sigri. Frakkar hörfuðu, en staðan var óbreytt. Fjórum árum seinna voru Frakkar enn í borginni til að reyna að bæta samningsstöðu sína í friðarsamningunum í Vestfalíu. Þeir hurfu ekki þaðan fyrr en samningarnir voru undirritaðir. 30 ára stríðið reyndist Freiburg þungur baggi. Íbúum hafði fækkað úr 14 þúsund niður í 2.000 í stríðslok.



Undir franskri stjórn |


Aðeins 40 árum síðar hófst næsti hildarleikur. Fransk/hollenska stríðið skall á, þar sem Loðvík XIV konungs Frakklands reyndi að auka við ríki sitt. Stríðið hafði ekki áhrif á Freiburg. Áður voru Frakkar búnir að hernema allt Elsass hérað (Alsace á frönsku). En í nóvember 1678 fóru Frakkar óvænt yfir Rínarfljót og sátu um Freiburg. Eftir fyrstu fallbyssuárásina gafst borgin upp og var hernumin. Í friðarsamningunum í Nijmegen í Hollandi setti Loðvík XIV keisaranum Leopold I kosti. Ef keisarinn myndi viðurkenna eign Frakka á Elsass, skyldu Frakkar skila annað hvort Freiburg eða Philippsburg. Leopold kaus Philippsburg og þar við sat. Frakkar innlimuðu þá Freiburg í Elsass og varð hún frönsk borg. Árið 1681 sótti Loðvík sjálfur borgina heim. Loðvík hélt hins vegar áfram að herja á nágrannalöndin, sérstaklega á þýska ríkið (oft kallað 9 ára stríðið). Þá var myndað mikið bandalag gegn honum sem tókst að halda Frökkum í skefjum. Í friðarsamningunum í Rijswjik í Hollandi 1697 máttu Frakkar halda Elsass en urðu að skila Freiburg. Það með varð borgin aftur þýsk. 1701-1713 geysaði spænska erfðastríðið. Enn seildist Loðvík XIV til áhrifa í nágrannaland. Aftur var myndað bandalag gegn Frakklandi og barist var á ýmsum stöðum. Á síðasta stríðsárinu 1713 fór 150 þúsund manna franskur her yfir Rínarfljót og sat um Freiburg. Í borginni var 10 þúsund manna varnarher, sem mátti sín lítils gegn ofureflinu. Þó náði hann að halda Frökkum í skefjum í þrjár vikur áður en borgin féll. Friðarsamningar stríðsins fóru fram í Rastatt (rétt sunnan við Karlsruhe) 1714. Í þeim þurfti Loðvík XIV að skila Freiburg. Enn herjuðu Frakkar á Freiburg 1744 í austurríska erfðastríðinu. Að þessu var það Loðvík XV sem herjaði á borgina og fór hann sjálfur fyrir liði sínu. Varnarliðinu tókst að verjast Frökkum í sex heilar vikur undir stöðugri fallbyssuskothríð. Að endingu gafst borgin upp og Frakkar hertóku hana enn einu sinni. Í friðarsamningunum í Füssen í Bæjaralandi neyddist Loðvík til að skila borgina aftur. Hún var þá orðin svo sundurskotin að þar bjuggu þá aðeins tæplega 4.000 manns. Ekki fékk borgin að hvíla lengi. 1793 ruddist franskur byltingarher yfir Rínarfljót og sat um Freiburg enn á ný. Hún féll ekki fyrr en eftir gríðarlega bardaga, þar sem varnarlið varðist hetjulega. Austurrískur her náði þó að frelsa hana sama ár. En Austurríki mátti sín lítils gegn Napoleon nokkrum árum seinna. Napoleon sigraði þá í stórorrustunni við Austerlitz. Meðan hann sat í Vínarborg innlimaði hann borgina Freiburg í Baden. Það með var endir bundinn á yfirráðum Habsborgarmanna á borginni. Eftir tap Napoleons i Rússlandi, hittust þrír þjóðhöfðingjar í Freiburg. Alexander I Rússakeisari, Friðrik Vilhjálmur Prússakonungur og Frans I keisari Austurríkis. Borgarbúar veittu þeim glæsilegar móttökur. Á Vínarfundinum 1815 var ákveðið að Freiburg skuli áfram vera hluti af Baden í stað eign Habsborgar.



Nýrri tímar |




Miðborgin í Freiburg. Maríukirkjan er mest áberandi. Neðst má sjá Marteinshliðið.


Heimstyrjöldin fyrri reyndist borginni erfið. Hún varð 25 sinnum fyrir loftárásum bandamanna, oftar en nokkur önnur þýsk borg. Mikið var um flóttafólk í borginni, en vöruflutningar mjög erfiðir. Þetta olli miklu hungri hjá borgarbúum. Árið 1923 var haldin alþjóðleg friðarráðstefna í borginni með þátttöku 7.000 manna frá 23 þjóðum. Einn af þýsku þátttakendunum var Ludwig Quidde, sem seinna hlaut friðarverðlaun Nóbels. Í heimstyrjöldinni síðari varð borgin tvisvar fyrir loftárásum. Í fyrra sinnið, 1940, voru þýskar flugvélar að verki, en þær tóku Freiburg í misgripum fyrir franska borg. Eyðileggingin var þó til að gera lítil. Í desember 1944 gerðu Bretar loftárás á borgina og vörpuðu 150 þúsund sprengjum á hana. Nær öll miðborgin eyðilagðist og týndu 3.000 manns lífi. Í apríl 1945 hertóku Frakkar borgina. Charles de Gaulle kom þangað í október og stóð fyrir sigurgöngu um götur borgarinnar. Freiburg var á hernámssvæði Frakka. Þeir gerðu hana að höfuðborg Baden (sem náði nokkurn vegin yfir hernámssvæði þeirra) og var Freiburg því höfuðborg allt til 1952. Þá var sambandslandið Baden-Württemberg stofnað með Stuttgart sem höfuðborg.



Íþróttir |


Aðalknattspyrnulið borgarinnar er SC Freiburg, sem leikur ýmist í 1. eða 2. Bundeligunni. Besti árangur félagsins er 3. sætið árið 1995.


Fjórum sinnum var Freiburg viðkomustaður hjólreiðakeppninnar Tour de France, síðast árið 2000. Árið 2005 var haldið heimsmeistaramótið í hjólreiðum innanhús. Þetta er eina HM í íþróttum sem haldið hefur verið í borginni.



Vinabæir |


Freiburg viðheldur vinabæjatengslum við eftirfarandi borgir:






  • Fáni Frakklands Besançon í Frakklandi, síðan 1959


  • Fáni Austurríkis Innsbruck í Austurríki, síðan, 1963


  • Fáni Ítalíu Padua á Ítalíu, síðan 1967


  • Fáni Bretlands Guildford í Englandi, síðan 1969


  • Fáni Bandaríkjana Madison í Wisconsin, BNA síðan 1987



  • Fáni Japan Matsuyama í Japan, síðan 1988


  • Fáni Úkraínu Lviv í Úkraínu, síðan 1989


  • Fáni Spánar Granada Spáni, síðan 1991


  • Fáni Íran Isfahan í Íran, síðan 2000

Auk þess eru ákveðin vinatengsl við borgina Wiwilí í Níkaragva.



Frægustu börn borgarinnar |




Marteinshliðið


  • (1470-72) Martin Waldseemüller kortagerðarmaður og sá sem fyrst fann upp á heitinu Ameríka

  • (1942) Wolfgang Schäuble innanríkisráðherra og fjármálaráðherra Þýskalands

  • (1963) Til Schweiger kvikmyndaleikari


Byggingar og kennileiti |



  • Frúarkirkjan í Freiburg er helsta kennileiti borgarinnar. Hún var 313 ár í byggingu og er af mörgum talin ein fegursta kirkja heims.


  • Rauða kauphúsið í Freiburg var á sínum tima þinghús Baden eftir seinna stríð, meðan Freiburg var höfuðborg Baden. Það er eitt glæsilegasta hús borgarinnar.


  • Marteinshliðið er gamalt borgarhlið í Freiburg, eitt af tveimur sem enn standa. Það er frá 12. eða 13. öld.


  • Sváfahliðið er einnig gamalt borgarhlið í Freiburg. Það er bæði minna og yngra en Marteinshliðið.


Heimildir |





 




Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Freiburg (Þýskaland)





  • Fyrirmynd greinarinnar var „Freiburg im Breisgau“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt janúar 2010.








Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Freiburg_(Þýskaland)&oldid=1624199“










Leiðsagnarval



























(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.176","walltime":"0.232","ppvisitednodes":"value":569,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":29288,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":717,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":6,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":0,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 92.730 1 -total"," 55.07% 51.068 1 Snið:Borgir_í_Þýskalandi"," 51.52% 47.770 1 Snið:Navbox_generic"," 10.52% 9.756 1 Snið:Commonscat"," 6.20% 5.747 1 Snið:Commons"," 4.96% 4.600 1 Snið:FRA"," 4.74% 4.397 1 Snið:Border"," 4.22% 3.909 1 Snið:Wpheimild"," 4.18% 3.880 78 Snið:·"," 3.14% 2.915 1 Snið:Nowrap"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.006","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":711439,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1318","timestamp":"20190429180307","ttl":2592000,"transientcontent":false);mw.config.set("wgBackendResponseTime":131,"wgHostname":"mw1251"););

Popular posts from this blog

Færeyskur hestur Heimild | Tengill | Tilvísanir | LeiðsagnarvalRossið - síða um færeyska hrossið á færeyskuGott ár hjá færeyska hestinum

He _____ here since 1970 . Answer needed [closed]What does “since he was so high” mean?Meaning of “catch birds for”?How do I ensure “since” takes the meaning I want?“Who cares here” meaningWhat does “right round toward” mean?the time tense (had now been detected)What does the phrase “ring around the roses” mean here?Correct usage of “visited upon”Meaning of “foiled rail sabotage bid”It was the third time I had gone to Rome or It is the third time I had been to Rome

Slayer Innehåll Historia | Stil, komposition och lyrik | Bandets betydelse och framgångar | Sidoprojekt och samarbeten | Kontroverser | Medlemmar | Utmärkelser och nomineringar | Turnéer och festivaler | Diskografi | Referenser | Externa länkar | Navigeringsmenywww.slayer.net”Metal Massacre vol. 1””Metal Massacre vol. 3””Metal Massacre Volume III””Show No Mercy””Haunting the Chapel””Live Undead””Hell Awaits””Reign in Blood””Reign in Blood””Gold & Platinum – Reign in Blood””Golden Gods Awards Winners”originalet”Kerrang! Hall Of Fame””Slayer Looks Back On 37-Year Career In New Video Series: Part Two””South of Heaven””Gold & Platinum – South of Heaven””Seasons in the Abyss””Gold & Platinum - Seasons in the Abyss””Divine Intervention””Divine Intervention - Release group by Slayer””Gold & Platinum - Divine Intervention””Live Intrusion””Undisputed Attitude””Abolish Government/Superficial Love””Release “Slatanic Slaughter: A Tribute to Slayer” by Various Artists””Diabolus in Musica””Soundtrack to the Apocalypse””God Hates Us All””Systematic - Relationships””War at the Warfield””Gold & Platinum - War at the Warfield””Soundtrack to the Apocalypse””Gold & Platinum - Still Reigning””Metallica, Slayer, Iron Mauden Among Winners At Metal Hammer Awards””Eternal Pyre””Eternal Pyre - Slayer release group””Eternal Pyre””Metal Storm Awards 2006””Kerrang! Hall Of Fame””Slayer Wins 'Best Metal' Grammy Award””Slayer Guitarist Jeff Hanneman Dies””Bullet-For My Valentine booed at Metal Hammer Golden Gods Awards””Unholy Aliance””The End Of Slayer?””Slayer: We Could Thrash Out Two More Albums If We're Fast Enough...””'The Unholy Alliance: Chapter III' UK Dates Added”originalet”Megadeth And Slayer To Co-Headline 'Canadian Carnage' Trek”originalet”World Painted Blood””Release “World Painted Blood” by Slayer””Metallica Heading To Cinemas””Slayer, Megadeth To Join Forces For 'European Carnage' Tour - Dec. 18, 2010”originalet”Slayer's Hanneman Contracts Acute Infection; Band To Bring In Guest Guitarist””Cannibal Corpse's Pat O'Brien Will Step In As Slayer's Guest Guitarist”originalet”Slayer’s Jeff Hanneman Dead at 49””Dave Lombardo Says He Made Only $67,000 In 2011 While Touring With Slayer””Slayer: We Do Not Agree With Dave Lombardo's Substance Or Timeline Of Events””Slayer Welcomes Drummer Paul Bostaph Back To The Fold””Slayer Hope to Unveil Never-Before-Heard Jeff Hanneman Material on Next Album””Slayer Debut New Song 'Implode' During Surprise Golden Gods Appearance””Release group Repentless by Slayer””Repentless - Slayer - Credits””Slayer””Metal Storm Awards 2015””Slayer - to release comic book "Repentless #1"””Slayer To Release 'Repentless' 6.66" Vinyl Box Set””BREAKING NEWS: Slayer Announce Farewell Tour””Slayer Recruit Lamb of God, Anthrax, Behemoth + Testament for Final Tour””Slayer lägger ner efter 37 år””Slayer Announces Second North American Leg Of 'Final' Tour””Final World Tour””Slayer Announces Final European Tour With Lamb of God, Anthrax And Obituary””Slayer To Tour Europe With Lamb of God, Anthrax And Obituary””Slayer To Play 'Last French Show Ever' At Next Year's Hellfst””Slayer's Final World Tour Will Extend Into 2019””Death Angel's Rob Cavestany On Slayer's 'Farewell' Tour: 'Some Of Us Could See This Coming'””Testament Has No Plans To Retire Anytime Soon, Says Chuck Billy””Anthrax's Scott Ian On Slayer's 'Farewell' Tour Plans: 'I Was Surprised And I Wasn't Surprised'””Slayer””Slayer's Morbid Schlock””Review/Rock; For Slayer, the Mania Is the Message””Slayer - Biography””Slayer - Reign In Blood”originalet”Dave Lombardo””An exclusive oral history of Slayer”originalet”Exclusive! Interview With Slayer Guitarist Jeff Hanneman”originalet”Thinking Out Loud: Slayer's Kerry King on hair metal, Satan and being polite””Slayer Lyrics””Slayer - Biography””Most influential artists for extreme metal music””Slayer - Reign in Blood””Slayer guitarist Jeff Hanneman dies aged 49””Slatanic Slaughter: A Tribute to Slayer””Gateway to Hell: A Tribute to Slayer””Covered In Blood””Slayer: The Origins of Thrash in San Francisco, CA.””Why They Rule - #6 Slayer”originalet”Guitar World's 100 Greatest Heavy Metal Guitarists Of All Time”originalet”The fans have spoken: Slayer comes out on top in readers' polls”originalet”Tribute to Jeff Hanneman (1964-2013)””Lamb Of God Frontman: We Sound Like A Slayer Rip-Off””BEHEMOTH Frontman Pays Tribute To SLAYER's JEFF HANNEMAN””Slayer, Hatebreed Doing Double Duty On This Year's Ozzfest””System of a Down””Lacuna Coil’s Andrea Ferro Talks Influences, Skateboarding, Band Origins + More””Slayer - Reign in Blood””Into The Lungs of Hell””Slayer rules - en utställning om fans””Slayer and Their Fans Slashed Through a No-Holds-Barred Night at Gas Monkey””Home””Slayer””Gold & Platinum - The Big 4 Live from Sofia, Bulgaria””Exclusive! Interview With Slayer Guitarist Kerry King””2008-02-23: Wiltern, Los Angeles, CA, USA””Slayer's Kerry King To Perform With Megadeth Tonight! - Oct. 21, 2010”originalet”Dave Lombardo - Biography”Slayer Case DismissedArkiveradUltimate Classic Rock: Slayer guitarist Jeff Hanneman dead at 49.”Slayer: "We could never do any thing like Some Kind Of Monster..."””Cannibal Corpse'S Pat O'Brien Will Step In As Slayer'S Guest Guitarist | The Official Slayer Site”originalet”Slayer Wins 'Best Metal' Grammy Award””Slayer Guitarist Jeff Hanneman Dies””Kerrang! Awards 2006 Blog: Kerrang! Hall Of Fame””Kerrang! Awards 2013: Kerrang! Legend”originalet”Metallica, Slayer, Iron Maien Among Winners At Metal Hammer Awards””Metal Hammer Golden Gods Awards””Bullet For My Valentine Booed At Metal Hammer Golden Gods Awards””Metal Storm Awards 2006””Metal Storm Awards 2015””Slayer's Concert History””Slayer - Relationships””Slayer - Releases”Slayers officiella webbplatsSlayer på MusicBrainzOfficiell webbplatsSlayerSlayerr1373445760000 0001 1540 47353068615-5086262726cb13906545x(data)6033143kn20030215029