Kólumbía Leiðsagnarvalbæta við greininab
KólumbíaSpænskumælandi lönd
Suður-AmeríkuVenesúelaBrasilíuEkvadorPerúPanamaKaríbahafiKyrrahafinuSan Andrés y ProvidenciaNíkaragvafrumbyggjumsteinöldMuiscaQuimbayaTaironaSpánverjar1499Varakonungsdæmið Nýja-GranadaBógótaStór-KólumbíaSimón Bolívar1819VenesúelaEkvadorLýðveldið Nýja-GranadaPanama1903frjálslyndraíhaldsmannalíffjölbreytniregnskógaAmasónsvæðinuAndesfjöllhitabeltisgresjurRómönsku AmeríkuBrasilíuMexíkóBógótaMedellínolíakolsmaragðakaffispappírs
Kólumbía
Jump to navigation
Jump to search
República de Colombia | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Libertad y Orden (spænska: Frelsi og regla) | |
Þjóðsöngur: Oh Gloria Inmarcesible! | |
Höfuðborg | Bógóta |
Opinbert tungumál | spænska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Iván Duque Márquez |
Sjálfstæði frá Spáni | |
- Yfirlýst | 20. júlí, 1810 |
- Viðurkennt | 7. ágúst, 1819 |
Flatarmál - Samtals - Vatn (%) | 26. sæti 1.141.748 km² 8,8 |
Mannfjöldi - Samtals (2015) - Þéttleiki byggðar | 27. sæti 48.014.026 40,74/km² |
VLF (KMJ) - Samtals - á mann | áætl. 2015 427,139 millj. dala (31. sæti) 8.858 dalir (83. sæti) |
Gjaldmiðill | kólumbískur pesi |
Tímabelti | UTC-5 |
Þjóðarlén | .co |
Landsnúmer | 57 |
Kólumbía er land í norðvesturhluta Suður-Ameríku með landamæri að Venesúela og Brasilíu í austri, Ekvador og Perú í suðri og Panama í norðvestri. Það á strönd að Karíbahafi í norðri og Kyrrahafinu í vestri. Kólumbía ræður yfir stórum eyjaklasa í Karíbahafi, San Andrés y Providencia, undan strönd Níkaragva.
Landið þar sem nú er Kólumbía var byggt frumbyggjum frá því í steinöld. Þar stóðu menningarsamfélögin Muisca, Quimbaya og Tairona. Spánverjar komu til landsins árið 1499 og lögðu það brátt undir sig. Þeir stofnuðu Varakonungsdæmið Nýja-Granada með höfuðborgina Bógóta. Varakonungsdæmið lýsti yfir sjálfstæði sem Stór-Kólumbía í kjölfar herfara Simón Bolívar 1819. Nokkrum árum síðar klufu Venesúela og Ekvador sig frá þessu ríki og eftir varð Lýðveldið Nýja-Granada. Panama klauf sig frá Kólumbíu árið 1903. Eftir síðari heimsstyrjöld leiddu pólitísk átök til tíu ára vopnaðra átaka, La Violencia. Stjórnarsamstarf frjálslyndra og íhaldsmanna batt endi á þessi átök en brátt hófst skæruhernaður við ýmsa vopnaða hópa og glæpasamtök sem hefur haldið áfram til þessa dags.
Kólumbía er eitt af sautján löndum heims með mesta líffjölbreytni. Landið nær yfir regnskóga á Amasónsvæðinu, Andesfjöll og hitabeltisgresjur. Kólumbía er þriðja fjölmennasta ríki Rómönsku Ameríku og þriðja stærsta hagkerfið á eftir Brasilíu og Mexíkó. Flestar stærstu borgir landsins, eins og Bógóta og Medellín, standa á hásléttum í Andesfjöllum. Helstu útflutningsafurðir Kólumbíu eru olía og kol, en landið er líka þekkt fyrir framleiðslu smaragða, kaffis og pappírs meðal annars.
Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Flokkar:
- Kólumbía
- Spænskumælandi lönd
(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.120","walltime":"0.152","ppvisitednodes":"value":1390,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":15072,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":2071,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":7,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":5,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 81.865 1 -total"," 48.23% 39.482 1 Snið:Stubbur"," 33.65% 27.549 1 Snið:Suður-Ameríka"," 30.08% 24.626 1 Snið:Navbox"," 17.84% 14.602 1 Snið:Land"," 2.83% 2.317 1 Snið:Rammi"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.007","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":671403,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1263","timestamp":"20190311230549","ttl":2592000,"transientcontent":false);mw.config.set("wgBackendResponseTime":137,"wgHostname":"mw1326"););