Skip to main content

Wikipedia:Kynning Efnisyfirlit Um hvað má ég skrifa? Hvernig skrifa ég nýja grein? Hverju má ég breyta á öðrum greinum? Næstu skref Leiðsagnarval

Wikipedíafrjálstalfræðiritbreytingarmarkverthvenær fólk sé nógu markvert fyrir greinviðkomandi er enn á lífibúa til aðgangspjallsíðubreytingum










Wikipedia:Kynning


Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Jump to navigation
Jump to search


Wikipedía er frjálst alfræðirit skrifað í samvinnu fjölmargra notenda um allan heim. Allar breytingar eru skráðar í breytingaskrá einstakra síðna. Aðrir notendur fylgjast með því hvaða breytingar eru gerðar og fjarlægja skemmdarverk og bull yfirleitt fljótt.




Efnisyfirlit





  • 1 Um hvað má ég skrifa?


  • 2 Hvernig skrifa ég nýja grein?


  • 3 Hverju má ég breyta á öðrum greinum?


  • 4 Næstu skref




Um hvað má ég skrifa?


Þú getur skrifað um næstum því hvað sem er ef það er markvert og ef viðfangsefnið hefur fengið mikla umfjöllun í bókum eða fréttum. Ef þú ætlar að skrifa um manneskju getur verið gott að kíkja á viðmiðin um hvenær fólk sé nógu markvert fyrir grein, og þú skalt vera sérlega passasamur ef viðkomandi er enn á lífi og bera virðingu fyrir einkahögum fólks.


Það er best að sleppa því að skrifa:


  • Greinar um sjálfan þig, fjölskyldu þína, vini þína, fyrirtækið þitt, hljómsveitina þína, eða bókina þína.

  • Greinar sem gætu litið út eins og auglýsing.

  • Greinar um eitthvað sem hefur ekki fengið nokkra umfjöllun um sig í bókum eða fréttum.

  • Persónuárásir eða hvöss orð um fyrirtæki.

  • Þínar eigin tilgátur. Frumrannsóknir eru ekki leyfðar.

  • Greinar sem eru bara ein setning.


Hvernig skrifa ég nýja grein?


Það er auðvelt að búa til nýja grein á Wikipedíu. Ef þú ert búinn að nota leitarvélina og sérð að greinin þín er ekki til nú þegar skaltu stimpla titil hennar inn hérna og búa hana til:





Þetta býr til grein í þínu eigin notandarými og þarna geturðu prófað þig áfram. Það getur verið gott að búa til aðgang fyrst, en það er ekki nauðsynlegt.


  • Greinin verður að byrja á inngangi sem skilgreinir viðfangsefnið á skýran máta.

  • Kíktu á hvernig hin fullkomna grein lítur út. Mjög mikilvægt er að greinin sé auðskiljanleg, hlutlaus, og vísi í ritaðar heimildir fyrir öllum staðhæfingum.

  • Í boði eru tvær leiðir til að skrifa texta á Wikipedíu:

    • Sýnilegar breytingar er mjög þægileg leið til að skrifa. Það er sá hamur sem maður fær upp þegar maður ýtir á Breyta. Þar geturðu mjög auðveldlega stillt útlit og bætt við hlekkjum í aðrar greinar.


    • Frumkóði er hrár texti sem tölvur skilja. Frumkóða-haminn fær maður upp þegar maður ýtir á Breyta frumkóða. Allar greinar á Wikipedíu eru í raun geymdar á frumkóðanum og þó að maður geti vanalega komist hjá því að þurfa að skrifa frumkóða þarf maður stundum að grípa til hans ef maður er að gera eitthvað flókið. Maður þarf líka að skrifa í frumkóða á spjallsíðunum, en þú þarft ekki að kunna frumkóða til að leggja til málsins. Kóðinn lítur svona út: '''þetta''' verður að feitletruðum texta og [[þetta]] verður að hlekk á greinina með titilinn „þetta“.

    • Þú getur skipt á milli þessara tveggja leiða með því að ýta á blýantinn uppi í hægra horninu.


  • Ekki er leyfilegt að bæta höfundaréttarvörðu efni við nema að skriflegt leyfi höfundar liggi fyrir. Sýna þarf fram á að leyfi hafi fengist.


  • Mjög mikilvægt er að vísa í heimildir fyrir því sem þú segir í greinum. Þú getur sett inn tilvísanir með því að ýta á Heimild > Handvirkt > Vefheimild og stimpla þar inn upplýsingar. Tilvísanir eru settar í lok efnisgreinar eða lok setningar.

  • Þegar þú ert búinn ýtirðu á bláa hnappinn Birta síðu. Greinin þín er ennþá staðsett í þínu eigin notandarými en ekki á aðalsíðu Wikipedíu, það gefur þér séns á að leika þér með framsetninguna á greininni þinni áður en þú birtir hana sem alvöru grein. Aðrir notendur geta þó opnað slóðina og unnið í greininni með þér.

  • Þegar þér finnst greinin þín vera orðin tilbúin þarf að færa greinina úr notandarýminu þínu yfir á aðalsíðu Wikipedíu, þá er hún birt sem alvöru grein. Ljúktu við að gefa út breytingarnar þínar og ýttu á Meira og svo Færa og uppfærðu titil greinarinnar þinnar. Þú sérð að nú heitir greinin þín Notandi > NOTANDANAFN/Greinin mín en nú færir þú síðuna þína yfir á (Aðalnafnrýmið) > Greinin mín. Þú getur líka sett inn skilaboð á spjallsíðu greinarinnar þinnar og beðið um að einhver annar notandi lesi greinina yfir og flytji hana fyrir þig.

  • Nú ert þú búinn að gefa út þína fyrstu grein. Eins og þú veist er Wikipedía samvinnuverkefni og nú geta aðrir notendur unnið áfram að greininni. Það á enginn greinar á Wikipedíu.

  • Ef þú lendir í vandræðum eða ert í vafa um eitthvað í greininni geturðu sett inn skilaboð á spjallsíðu greinarinnar. Aðrir notendur sem fylgjast með öllum breytingum á greinum munu þá líta við.


Hverju má ég breyta á öðrum greinum?




Fylgdu Breyta tenglinum til að virkja breytingarham


Það er alltaf hægt að bæta grein. Ef þú sérð eitthvað á grein sem að mætti bæta hvetjum við þig til að taka af skarið og bæta það. Vertu óhræddur við að gera breytingar! Það er alltaf hægt að laga mistök eftir á. Kíktu á leiðbeiningarnar hérna fyrir ofan um hvernig maður skrifar texta á Wikipedíu.


Ef þú kannt ekki að breyta einhverju ákveðnu, ert í vafa með hvort það ætti að breyta, eða heldur að breytingarnar þínar gætu verið umdeildar geturðu sett inn skilaboð á spjallsíðu greinarinnar. Aðrir notendur sem fylgjast með öllum breytingum á greinum munu þá líta við og svara.


Þegar þú ert búinn að breyta ýtirðu á bláa hnappinn Gefa út breytingar og lýsir því hverju þú breyttir.



Næstu skref


  • Námskeið um skrif á Wikipedíu

  • Handbókin

  • Tillögur að greinum



Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Wikipedia:Kynning&oldid=1626639“





Leiðsagnarval

























(window.RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.036","walltime":"0.039","ppvisitednodes":"value":51,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":0,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":0,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":2,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":528,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 0.000 1 -total"],"cachereport":"origin":"mw1336","timestamp":"20190308184705","ttl":2592000,"transientcontent":false);mw.config.set("wgBackendResponseTime":93,"wgHostname":"mw1322"););

Popular posts from this blog

He _____ here since 1970 . Answer needed [closed]What does “since he was so high” mean?Meaning of “catch birds for”?How do I ensure “since” takes the meaning I want?“Who cares here” meaningWhat does “right round toward” mean?the time tense (had now been detected)What does the phrase “ring around the roses” mean here?Correct usage of “visited upon”Meaning of “foiled rail sabotage bid”It was the third time I had gone to Rome or It is the third time I had been to Rome

Bunad

Færeyskur hestur Heimild | Tengill | Tilvísanir | LeiðsagnarvalRossið - síða um færeyska hrossið á færeyskuGott ár hjá færeyska hestinum